Álgluggar – viðhaldsfríir í íslensku veðri

Álgluggar og álklæddir timburgluggar þurfa ekki málningu og fúna ekki. Álið að utan tekur veðrið, timbrið að innan (í álklæddum gluggum) gefur hlýtt yfirbragð og góða einangrun. Við mælum, útvegum gluggana og setjum þá í – allt á einum stað – og sjáum um gluggaskipti á öllum stærðum húsa.

Hvað hentar þínu húsi?

Gerð Kostir Hentar
Álgluggar Viðhaldsfríir, sterkir, grannir prófílar, allir litir Fjölbýlishús, atvinnuhúsnæði, nútímaleg hús
Álklæddir timburgluggar Ál að utan, timbur að innan – viðhaldsfrítt útlit og hlýtt yfirbragð Einbýlishús og raðhús
Timburgluggar Hefðbundið útlit, hagkvæmir Eldri hús þar sem útlit þarf að halda sér
PVC-gluggar Viðhaldsfríir og hagkvæmir Þar sem verð ræður mestu
Nýir gluggar og álklæðning á Axlarási 21
Axlarás 21 – nýir gluggar, álklæðning og þakfrágangur.

Álgluggar í fjölbýlishús, atvinnuhúsnæði og einbýli

Í fjölbýlishúsum og atvinnuhúsnæði eru álgluggar oft góður kostur til lengri tíma: þá þarf ekki að mála og prófílarnir eru nógu sterkir fyrir stóra glugga, rennihurðir og glerveggi. Í einbýlis- og raðhúsum velja margir álklædda timburglugga til að halda hlýju timburútliti að innan. Við förum yfir hvort skipta þarf um allan gluggann eða hvort glerskipti eða gluggaviðgerð dugi – og ef skipt er um svalahurðir eða útihurðir í sömu umferð er hægt að fá þær í sama lit og prófíl.

Ísetning innifalin

Gluggaskipti eru meira en glugginn sjálfur: gamli glugginn tekinn úr, karmur og múr í kring skoðaður, nýr gluggi settur í, þéttur með réttum þéttiefnum og gengið frá vatnsbrettum, áfellum og múr. Við gerum þetta allt í einni umferð – og oft um leið og klæðning eða þak er endurnýjað svo vinnupallarnir nýtist.

Gluggareiknivélin: skráðu gluggana og hurðirnar, gróf mál og mynd – og fáðu frítt tilboð í glugga, hurðir og ísetningu. Opna Gluggareiknivélina →

Frítt tilboð

Sendu okkur stutta lýsingu og myndir – við skoðum, mælum og gerum skýrt tilboð. Sími 690 3355.

Fá frítt tilboð →

Gluggaverk sem við höfum unnið

Algengar spurningar

Hvað kosta álgluggar með ísetningu?

Fer eftir fjölda, stærð, gerð og aðgengi. Skráðu gluggana í Gluggareiknivélina eða sendu okkur mál og myndir – við gerum frítt tilboð í glugga og ísetningu.

Hver er munurinn á álglugga og álklæddum timburglugga?

Álgluggi er allur úr áli. Álklæddur timburgluggi er timburgluggi með álkápu að utan – viðhaldsfrír að utan, timbur að innan.

Fást álgluggar í öllum litum?

Já, álið er húðað í nánast hvaða lit sem er, líka í öðrum lit að innan en utan.

Hvað tekur ísetning langan tíma?

Á einbýlishúsi oftast nokkra daga; í fjölbýlishúsi er unnið íbúð fyrir íbúð svo hver íbúð er opin sem styst.

Henta álgluggar íslenskum aðstæðum?

Já. Ál ryðgar ekki og þolir vind, regn og seltu vel. Mestu skiptir að ísetningin sé rétt: þétting við karm, vatnsbretti og áfellur sem leiða vatnið burt.