Fáðu tilboð í nýtt þak.
Heimilisfang og símanúmer er allt sem við þurfum. Við mælum þakið út frá loftmyndum og teikningum hússins og sendum þér sundurliðað tilboð – þú þarft ekki að mæla neitt.
Efni, vinna og frágangur – allt á einum stað
Settu inn lengd og breidd hússins – flatarmálið reiknast um leið.
Algengar spurningar um Þakreiknivélina
Hvernig er flatarmál þaksins reiknað?
Reiknivélin tekur grunnflöt hússins, bætir við um 50 cm þakskeggi á hvora hlið og leiðréttir fyrir halla þaksins. Brattara þak er stærra en grunnflöturinn. Þetta er áætlun – við mælum alltaf sjálf á staðnum.
Ál eða aluzink – hvort er betra?
Ál ryðgar ekki, er léttara og endist lengst við íslenskar aðstæður – það fæst í 24 stöðluðum litum og 11 sérlitum auk fleiri báruforma (micro, stór, stölluð, trölla, trapiza). Aluzink er stál með ál- og sinkhúð, hagkvæmara og algengasta þakjárnið á Íslandi. Við ráðleggjum eftir húsi, halla og fjárhag.
Hver er munurinn á ólituðu og lituðu aluzinki?
Ólitað aluzink er málmgrátt og hagkvæmast. Litað aluzink kemur með verksmiðjuhúð í lit og þarf ekki málningu fyrstu árin. Bæði endast í áratugi ef frágangurinn er réttur.
Er þetta bindandi?
Nei. Þú færð tilboð sem þú getur skoðað í rólegheitum. Ekkert er ákveðið nema þú samþykkir tilboðið.
Vinnið þið fyrir húsfélög?
Já. Við gerum tilboð sem hægt er að leggja fyrir húsfund og skipuleggjum verkið í samráði við stjórn húsfélagsins.

