Fáðu frítt tilboð í jarðvinnu eða niðurrifLýstu verkinu og sendu myndir – við skoðum og gerum tilboð.

Jarðvinna, gröfuvinna og niðurrif

Góður undirbúningur er grunnurinn að góðu verki. Við sjáum um jarðvinnu, gröfuvinnu og niðurrif fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki – hvort sem verkið er sjálfstætt eða fyrsta skrefið í stærri framkvæmd.

Það sem við gerum

  • Gröfuvinna – skurðir fyrir lagnir, drenlagnir, undirbúningur fyrir palla, stéttar og göngustíga og mótun lóða.
  • Niðurrif og förgun – niðurrif innréttinga, veggja og eldri byggingarhluta, flokkun og förgun efnis.

Snyrtileg vinnubrögð

Við verjum það sem á að standa, göngum frá svæðinu eftir hvern dag og flokkum úrgang til endurvinnslu eins og kostur er. Markmiðið er að næsti verkþáttur geti hafist strax.

Allt í sama verkinu

Þar sem við sjáum líka um utanhúss frágang, steinsögun og innanhússfrágang getum við tekið verkið alla leið – frá niðurrifi að fullbúnu rými.

Algengar spurningar

Takið þið að ykkur lítil gröfuverk?

Já, við tökum bæði lítil og stór verk, t.d. skurð fyrir lögn, undirbúning fyrir pall eða jöfnun á lóð.

Sjáið þið um förgun?

Já. Við flokkum og fargum efni sem fellur til við niðurrif og skilum svæðinu hreinu.

Þarf leyfi fyrir niðurrifi?

Það fer eftir umfangi. Niðurrif innanhúss þarf yfirleitt ekki leyfi, en stærra niðurrif eða breytingar á burðarvirki geta þurft leyfi byggingarfulltrúa. Við förum yfir það með þér.