Gæðakerfi
Bygging og viðhald vinnur eftir gæðakerfi
- Yfirferð og mat á verkefni Við mætum á vettvang til að meta aðstæður, ljósmynda og skrá umfang. Þarfir og væntingar verkkaupa eru ræddar áður en vinna hefst.
- Tilboð – skýrt og gagnsætt Tilboð eru án kostnaðar, gilda í 4 vikur og fela í sér allt sem verkefnið krefst. Fullt gagnsæi tryggir að enginn falinn kostnaður komi fram.
- Allt innifalið í tilboði Verð og umfang ná yfir öll efni, vinnu og þjónustu. Aukaverk eru aðeins framkvæmd með samþykki og engir bakreikningar eru sendir.
- Upphaf framkvæmda Farið er yfir verkið með verkkaupa áður en byrjað er. Öryggis- og aðgengismál eru skoðuð og tímasetningar staðfestar.
- Öryggi og aðbúnaður Allur búnaður og fallvarnir eru sett upp eftir þörfum og vinna fer fram samkvæmt öryggisstöðlum.
- Aukaverk og óvænt atriði Ef óvænt atriði koma upp eru þau ljósmynduð og kynnt strax. Aukaverk eru unnin í samráði við verkkaupa.
- Staðlar og efni Við notum vottað og endingargott efni og fylgjum viðurkenndum stöðlum byggingariðnaðar. IST-30
- Þéttingar og viðkvæmir fletir Við tryggjum vandaðar þéttingar við glugga, skorsteina, rennur og önnur viðkvæm svæði til að koma í veg fyrir leka.
- Snyrtilegur verkstaður Verkstaður er haldinn hreinn og skipulagður á meðan framkvæmdum stendur og eftir þær.
- Tjón og tryggingar Ef tjón verður er það lagað tafarlaust. Verktakatrygging tryggir að verkkaupi beri engan kostnað af tjóni
- Samfella og tímasetningar Um leið og við byrjum á verkstað er verkið klárað, nema ytri vandamál komi upp, eins og skortur á efni – við stöndum við tímamörk og erum með mannafla á vakt allt árið.
- Fyrirtækisstefna „Við skilum traustu verki, vönduðum frágangi og áreiðanlegri þjónustu.“ Heiðarleiki og fagmennska eru lykilgildi.
- Fjárhagslegt gagnsæi Greiðslur fara yfirleitt fram við verklok eftir að verkkaupi hefur yfirfarið og samþykkt verkið.
- Ábyrgðir Við fylgjum gæðakerfinu í hvívetna og veitum ábyrgðir í samræmi við eðli verks og efnisval.

