Sprungur, frostskemmdir og flagnandi málning hleypa vatni inn í steypuna og skemmdirnar vaxa hratt í íslensku veðurfari. Við tökum að okkur múrviðgerðir og málun utanhúss fyrir húsfélög, heimili og fyrirtæki – allt frá afmörkuðum viðgerðum til heildarviðhalds á fjölbýlishúsum.

Fá tilboð í múrviðgerðir

Hvað felst í múrviðgerðum?

  • Sprunguviðgerðir – sprungur opnaðar, hreinsaðar og fylltar svo vatn komist ekki inn.
  • Steypuviðgerðir – laus og skemmd steypa brotin burt og byggð upp að nýju, t.d. á svalagólfum, köntum og sökklum.
  • Viðgerðir á svölum og köntum – þar sem vatn og frost vinna mest á.
  • Múrhúðun – ný múrhúð þar sem sú gamla hefur losnað.

Múrviðgerðir og málun á fjölbýlishúsi í Hrísmóum

Sprunguviðgerðir, alkalískemmdir og steining

Múrararnir okkar gera við sprungur og frostskemmdir, brjóta frá lausan múr og steypa í, meðhöndla alkalískemmdir og endursteina veggi. Fyrir málun eru veggir háþrýstiþvegnir og sílanbaðaðir þar sem við á, svo nýja málningin haldist og vatn smjúgi ekki inn í steypuna. Dæmi: Hrísmóar 1 – múrviðgerðir, glerskipti og málun á 11 hæða fjölbýli.

Málun utanhúss

Góð málning ver steypuna og gefur húsinu nýtt líf. Við undirbúum flötinn vel – háþrýstiþvottur, viðgerðir og grunnun þar sem þarf – áður en málað er. Þannig endist málningin lengur og viðhaldið verður minna næstu árin.

Heildarviðhald fyrir húsfélög

Oft er hagkvæmast að taka múrviðgerðir, málun, glerskipti og gluggaskipti í einu verki þegar vinnupallar eða lyftur eru hvort eð er uppi. Dæmi um slíkt verk er Hrísmóar 1 – múrviðgerðir, glerskipti og málun á 11 hæða fjölbýli og Engjasel 85–87 – álklæðning og múrviðgerðir.

Ef veggirnir eru orðnir mjög illa farnir getur klæðning utanhúss verið betri langtímalausn en endurteknar viðgerðir. Við metum það með þér.

Algengar spurningar

Hvenær er best að gera múrviðgerðir?

Múrviðgerðir og málun eru best unnin frá vori fram á haust þegar hiti og raki leyfa. Gott er að skipuleggja verkið tímanlega, sérstaklega fyrir húsfélög.

Er betra að gera við eða klæða húsið?

Það fer eftir ástandi veggjanna. Ef skemmdir eru afmarkaðar duga viðgerðir og málun. Ef steypan er mikið skemmd getur klæðning verið hagkvæmari til lengri tíma.

Vinnið þið fyrir húsfélög?

Já, stór hluti verka okkar er fyrir húsfélög á höfuðborgarsvæðinu. Við gerum skýr tilboð sem auðvelt er að leggja fyrir húsfund.

Hvernig fæ ég tilboð?

Sendu okkur stutta lýsingu og myndir í gegnum Hafa samband og við metum verkið og gerum frítt tilboð.