Kerfisloft eru fljótlegasta leiðin að betri hljóðvist, snyrtilegu rými og aðgengi að lögnum. Við höfum sett upp þúsundir fermetra af kerfisloftum – í grunnskólum fyrir sveitarfélög, í skrifstofum og í matvælavinnslu þar sem gerðar eru kröfur um hreinlætisloft. Við rífum niður gömlu loftin, förgum efninu, setjum upp nýtt burðarkerfi og plötur og göngum frá við veggi, ljós og loftræstingu.

Fá tilboð í kerfisloft

Gerðir kerfislofta

  • Hefðbundin 60×60 og 60×120 kerfisloft – steinullar- eða gifsplötur í sýnilegu T-kerfi. Algengust í skólum, skrifstofum og verslunum.
  • Hljóðvistarloft – t.d. Ecophon Focus, sem dregur úr glymi í kennslustofum, opnum skrifstofum og mötuneytum.
  • Hreinlætisloft (Hygiene) – þvottheldar plötur fyrir matvælavinnslu, eldhús og votrými.
  • Gifsloft og raka-/mygluþolin gifsloft – slétt loft þar sem ekki er óskað eftir sýnilegu kerfi.
  • Hangandi hljóðísogsplötur – þar sem ekki er hægt að setja heilt loft.

Kerfisloft með innfelldri lýsingu í nýbyggingu

Kerfisloft í skólum – unnið án þess að raska skólastarfi

Við höfum endurnýjað kerfisloft í fjölda grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu fyrir sveitarfélög – allt frá einstökum kennslustofum upp í heilar álmur með mörg hundruð fermetrum í senn, og rifið og sett upp aftur yfir þúsund fermetra af loftum samhliða þakskiptum. Verkin eru skipulögð með skólanum – í lokuðum áföngum, í skólafríum eða um helgar – og unnið í samráði við rafvirkja vegna ljósa og brunaviðvörunarkerfis.

Svona fer verkið fram

  1. Skoðun og mæling – við mælum rýmin, skoðum lagnir, ljós og loftræstingu fyrir ofan loftin.
  2. Tilboð – eftir magnskrá eða mælingu, með og án niðurrifs og förgunar.
  3. Niðurrif – eldra loft tekið niður, efni flokkað og fargað, gólf og innréttingar varin.
  4. Uppsetning – burðarkerfi hengt upp í réttri hæð, plötur lagðar, skorið fyrir ljósum, loftristum og skynjurum.
  5. Frágangur og úttekt – kantprófílar við veggi, þrif og yfirferð með eftirliti.

Innanhússfrágangur

Sendu okkur teikningar eða myndir og stutta lýsingu – við gerum frítt tilboð.

Fá tilboð →

Sjá einnig létta veggi og gips, veggjaklæðningar og yfirlit um innanhússfrágang.

Algengar spurningar

Hvað kostar að setja upp kerfisloft?

Verðið fer eftir fermetrafjölda, gerð platna og kerfis, lofthæð og hvort rífa þarf eldra loft. Sendu okkur teikningu eða mál og við gerum frítt tilboð á fermetra.

Hvaða kerfisloft henta í kennslustofur?

Hljóðvistarplötur (t.d. Ecophon Focus) draga mest úr glymi og eru algengastar í kennslurýmum. Við ráðleggjum eftir rýminu.

Er hægt að halda ljósum og lögnum?

Já. Við tökum loftin niður án þess að skemma lagnir og setjum ljós, loftristar og skynjara aftur í nýja loftið í samráði við rafvirkja.

Hvað tekur langan tíma að skipta um kerfisloft?

Ein kennslustofa tekur yfirleitt 1–2 daga með niðurrifi. Heil álma er unnin á nokkrum vikum yfir sumarið.