Við erum húsasmiðir – og öll trésmíði innanhúss er okkar fag. Frá timburbitum og burðarloftum sem smíðuð eru eftir burðarþolsteikningum, gólfplötum og einangrun, að hurðum, listum og innréttingum. Í nýbyggingum smíðum við burðarloft úr timburbitum og reimum, leggjum gólfspónaplötur með hljóðeinangrun í sperruloft og göngum frá raka- og mygluþolnum gifsloftum – allt samkvæmt teikningum og undir eftirliti verkkaupa.

Fá tilboð í trésmíði

Trésmíðaverk sem við tökum að okkur

  • Burðarloft og milliloft – timburbitar, reimar og gólfplötur eftir burðarþolsteikningum.
  • Einangrun og rakavarnarlag – í sperruloft, þök og útveggi – yfir þúsund fermetrar í einu verki.
  • Hurðir – ísetning innihurða, brunahurða og hljóðhurða, karmar, gerefti og læsingar.
  • Listar og frágangur – gólflistar, loftlistar, gerefti og gluggabekkir.
  • Innréttingar – niðurrif eldri innrétting (líka þeirra sem á að endurnýta), uppsetning nýrra innrétting í eldhúsum, böðum og kennslueldhúsum, fataskápar og geymslulausnir.
  • Sérsmíði – bekkir, hillur, afgreiðsluborð og lausnir sem passa í rýmið.

Ný rými með hurðum og loftum – trésmíði innanhúss í nýbyggingu

Fyrir skóla og stofnanir

Fyrir sveitarfélög höfum við meðal annars endurnýjað innréttingar í kennslueldhúsum, smíðað veggi og loft í sérgreinastofum og unnið ýmis viðhaldsverk í skólum og leikskólum. Verkin eru unnin eftir verkbeiðnum, gerð upp á tímavinnu eða tilboði og skipulögð þannig að skólastarf raskist sem minnst.

Heimili

Í íbúðum og einbýlishúsum sjáum við um allt frá hurðaskiptum og listum að heildarendurnýjun á baðherbergi eða eldhúsi, í samstarfi við pípara, rafvirkja og flísara. Dæmi: Bergstaðastræti 33 – heildarendurnýjun kjallaraíbúðar.

Innanhússfrágangur

Sendu okkur teikningar eða myndir og stutta lýsingu – við gerum frítt tilboð.

Fá tilboð →

Sjá einnig kerfisloft, létta veggi og gips og glugga og hurðir utanhúss.

Algengar spurningar

Eruð þið með húsasmíðameistara?

Já. Við erum með húsasmíðameistara og byggingarstjóra innanhúss og getum tekið að okkur verk sem krefjast meistaraábyrgðar.

Takið þið niður innréttingar sem á að endurnýta?

Já, við tökum innréttingar niður vandlega, merkjum þær og geymum eða flytjum eftir óskum.

Smíðið þið eftir teikningum burðarþolshönnuðar?

Já. Burðarloft, bitar og styrkingar eru smíðuð samkvæmt teikningum og skilað til úttektar.

Hvernig fæ ég tilboð?

Sendu okkur lýsingu, myndir og teikningar ef þær eru til. Minni verk eru oft unnin á tímavinnu, stærri á tilboði.