Uppsetning á innréttingum

Uppsetning á innréttingum – smiðir sem setja upp eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar, fataskápa og innihurðir. Þú kaupir innréttinguna hjá þeim söluaðila sem þú vilt og við sjáum um uppsetninguna: samsetningu, festingar, borðplötur, hurðir og framhliðar, stillingar og frágang – snyrtilega og á réttum tíma.

Hvað setjum við upp?

  • Eldhúsinnréttingar – skápar, borðplötur, framhliðar, höldur og stillingar; tengingar við pípulagnir og rafmagn í samvinnu við fagmenn.
  • Baðinnréttingar – vaskaskápar, speglaskápar og hillur.
  • Fataskápar og fataherbergi – innbyggðir skápar, rennihurðir og innvols.
  • Innihurðir – ísetning innihurða, karmar, gerefti og læsingar.
  • Listar og frágangur – gólflistar, loftlistar, gerefti og gluggabekkir.
  • Niðurrif og förgun – gamla innréttingin tekin niður (líka ef á að endurnýta hana).

Fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki

Við setjum upp innréttingar í einstakar íbúðir, heilar íbúðablokkir, skóla og atvinnuhúsnæði. Í stærri verkum vinnum við eftir teikningum og verkáætlun aðalverktaka eða verkkaupa. Sjá líka trésmíði og innréttingar, létta veggi og gips og kerfisloft.

Svona fer uppsetningin fram

  1. Þú sendir okkur teikningu eða pöntunarlista frá söluaðila og myndir af rýminu.
  2. Við gerum tilboð í uppsetninguna – frítt.
  3. Við mætum þegar innréttingin er komin, setjum upp og stillum.
  4. Lokafrágangur og yfirferð með þér.

Frítt tilboð

Sendu okkur teikningu eða pöntunarlista og myndir – við gerum tilboð í uppsetninguna.

Fá frítt tilboð →

Algengar spurningar

Setjið þið upp innréttingar sem ég kaupi sjálf/ur?

Já. Þú kaupir innréttinguna hjá þeim söluaðila sem þú vilt og við sjáum um uppsetninguna.

Takið þið gömlu innréttinguna niður?

Já, við tökum gömlu innréttinguna niður og fargum henni – eða tökum hana varlega niður ef á að endurnýta hana.

Sjáið þið um pípulagnir og rafmagn?

Við samræmum verkið við pípulagningamann og rafvirkja svo allt klárist í einni lotu.

Hvernig fæ ég tilboð?

Sendu okkur teikningu eða pöntunarlista og myndir af rýminu á hafa samband síðunni. Tilboðið er frítt.