Gluggareiknivélin

Fáðu tilboð í glugga- og hurðaskipti.

Heimilisfang, mynd og gróf mál af hverjum glugga. Við sjáum um restina – gluggana, hurðirnar og ísetninguna.

Tekur um 1 mínútu

Hvar er húsið?

Byrjaðu að skrifa og veldu heimilisfangið úr listanum.

Hvaða gluggum viltu skipta um?

Ein lína fyrir hverja stærð. Ef margir eru eins, breyttu bara fjöldanum. Óskir um hverja einingu (opnanlegt fag, sólvarnargler o.fl.) fara í athugasemdina.

📷 Mynd að utan + gróf mál í cm duga. Við mælum alltaf sjálf áður en pantað er.

Efni í nýjum gluggum og hurðum

Hvað viltu fá verð í?

Hvert sendum við tilboðið?

Við notum þetta eingöngu til að senda þér tilboð.

Með því að senda samþykkir þú að Bygging og Viðhald ehf. noti upplýsingarnar til að útbúa tilboð, sbr. friðhelgisstefnu. Ekkert er bindandi.

Algengar spurningar

Þarf ég að mæla nákvæmlega?

Nei. Gróf mál í sentímetrum duga fyrir tilboð. Við mælum alltaf sjálf á staðnum áður en nýir gluggar eru pantaðir.

Hvað ef margir gluggar eru eins?

Skráðu stærðina einu sinni og hækkaðu fjöldann með +.

Timbur eða timbur/ál?

Timburgluggar eru málaðir að innan og utan. Timbur/ál (álklætt timbur) er timbur að innan og ál að utan – nánast viðhaldsfrítt að utan. Ef þú ert ekki viss, veldu „Veit ekki“ og við ráðleggjum þér.

Er þetta bindandi?

Nei. Þú færð tilboð sem þú getur skoðað í rólegheitum. Ekkert er pantað nema þú samþykkir það.

Gluggaskipti með Bygging og Viðhald

Við skiptum um glugga og hurðir í einbýlishúsum, fjölbýlishúsum og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Við sækjum verð beint frá framleiðendum, mælum nákvæmlega á staðnum, fjarlægjum gömlu gluggana, setjum nýja í og göngum frá að innan og utan. Lestu meira um gluggaskipti eða skoðaðu verkin okkar.