Um 520 m² af sléttri álklæðningu á fjölbýlishús í Seljahverfi, ásamt umfangsmiklum múrviðgerðum áður en klætt var.
Húsfélagið að Engjaseli 85–87 bauð út utanhússviðhald árið 2025 þar sem gafl og efsta hæð garðmegin skyldu klædd með sléttri álklæðningu. Verkið var unnið undir eftirliti óháðs eftirlitsaðila með reglulegum verkfundum.
Áður en klæðning var sett upp var gert við allar sprungur í veggjum, enda eru klæðningar aldrei alveg vatnsþéttar. Múrviðgerðir reyndust mun meiri en áætlað var – á annað hundrað lengdarmetrar af sprungum og tugir ryðpunkta. Gaflveggurinn reyndist mjög skakkur og þurfti að nota lengri festingar víða til að rétta af álleiðarana svo klæðningin yrði bein. Klætt var með hvítri, sléttri álklæðningu (RAL 9016) frá Áltaki, með flasningum við glugga, horn og þakbrún og músaheldum U-skúffum við sökkul.
Verkið var unnið samfellt frá því það hófst og fór lokaúttekt fram 17. desember 2025, þar sem verkið taldist fullnægjandi lokið. Í lokafundargerð eftirlits kemur fram að verkið hafi heppnast vel og álklæðningin líti vel út.
Um verkið
- Staðsetning: Engjasel 85–87, Reykjavík
- Verktími: haust 2025 – desember 2025
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: ca. 520 m² álklæðning
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Sprunguviðgerðir og múrviðgerðir á gafli og bakhliðum, m.a. djúpar sprungur með trefjamúr og viðgerðir á ryðpunktum
- Slípun múrs og filtering
- Festingar og álleiðarar settir upp; aukavinna við að rétta af undirkerfi vegna mikillar skekkju í gaflvegg
- Slétt álklæðning, hvít (RAL 9016), á gafl og efstu hæð garðmegin
- Flasningar og áfellur við horn, glugga og þakbrún, U-skúffur með músaheldri loftun við sökkul
Efni
- Slétt álklæðning RAL 9016 frá Áltaki
- Álundirkerfi með veggfestingum
- Trefjamúr

