Eskihlíð 33–35 – Gluggaskipti í fjölbýlishúsi – ljósmynd 1

24 gluggum og hurðum skipt út í fjölbýlishúsi í Hlíðunum haustið 2025.

Húsfélagið að Eskihlíð 33–35 samdi við Bygging og Viðhald um að skipta út gluggum í húsinu. Gluggarnir voru mældir upp og smíðaðir hjá Gluggatækni, alls 24 timburgluggar og hurðir, hvít að innan og dökk að utan. Áður en pöntun fór af stað voru öll mál yfirfarin á staðnum og framleiðsluteikningar uppfærðar í samræmi við breytingar á pöntuninni.

Gluggaskiptin fóru fram í október 2025. Gamlar einingar voru fjarlægðar og fargað og nýjar settar í og þéttar. Í kjölfarið var farið yfir staði þar sem leki hafði verið og þeir þéttir með sérhæfðu þéttiefni í kverkar og samskeyti.

Árið 2026 óskaði húsfélagið eftir tveimur gluggum til viðbótar og voru þeir pantaðir í maí 2026.

Um verkið

  • Staðsetning: Eskihlíð 33–35, Reykjavík
  • Verktími: október 2025
  • Verkkaupi: Húsfélag
  • Umfang: 24 gluggar og hurðir (ca. 54 m²)
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Mæling á gluggum og gerð framleiðsluteikninga
  • Eldri gluggar og hurðir fjarlægð og fargað
  • Nýir timburgluggar og hurðir settir í og þéttir
  • Lekaviðgerðir í kverkum og á samskeytum með sérhæfðu þéttiefni
  • Tveir viðbótargluggar pantaðir 2026

Efni

  • ARLANGA timburgluggar og -hurðir frá Gluggatækni, hvítir að innan og dökkir að utan

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →

Þjónusta sem tengist þessu verkiGluggaskipti og hurðir →  ·  Reikna tilboð í glugga →

Unnum við fyrir þig? Gefðu okkur umsögn á Google →