Undirverktaki við endurbyggingu einbýlishúss í Seláshverfi – gluggaísetning, álundirkerfi, áfellur og ný utanhússklæðning.
Við Axlarás 21 í Seláshverfi í Reykjavík standa yfir umfangsmiklar endurbætur á íbúðarhúsi og starfar Bygging og Viðhald þar sem undirverktaki aðalverktakans Eining Verks. Hlutverk B&V snýr að ytra byrði hússins: ísetningu glugga og hurða, einangrun, undirkerfi og nýrri utanhússklæðningu.
Settir hafa verið í ál- og timbur/álgluggar og hurðir, gengið frá áfellum, skillistum og skordýraneti, gluggar þéttir með Extoseal-borða og kíttaðir að innan. Einnig var unnið að frágangi við þak og þakrennu, sem krafðist sérlausna þar sem teikningar voru takmarkaðar.
Verkið hófst vorið 2026 og stendur enn yfir; í september 2026 var unnið að uppsetningu veggklæðningar sem berst í áföngum frá framleiðanda.
Um verkið
- Staðsetning: Axlarás 21, Reykjavík
- Verktími: maí–september 2026
- Verkkaupi: Eining Verk
- Staða: Í vinnslu
Verkþættir
- Ísetning ál- og timbur/álglugga og útihurða
- Álundirkerfi og einangrun á útveggi
- Glugga- og hurðaáfellur, skillistar, úthorn og skordýranet
- Þétting umhverfis glugga (Extoseal) og kíttun að innan
- Frágangur við þak og þakrennu
- Uppsetning veggklæðningar úr áli og timbri
Efni
- Timbur/álgluggar og hurðir (gyllt ál RAL 1036)
- Álklæðning frá Málmtækni
- Álundirkerfi og steinull

