Þakreiknivélin

Settu inn gróf mál af húsinu, veldu þakefni og lit – og fáðu frítt tilboð í nýtt þak.

Reikna tilboð í þak →

Nýtt bárujárnsþak – aluzink eða litað bárujárn

Bárujárnsþak er algengasta þakið á Íslandi og það þak sem við leggjum oftast. Við skiptum um bárujárnsþök á einbýlishúsum, fjölbýlishúsum, skólum og atvinnuhúsnæði um allt höfuðborgarsvæðið – og höfum lagt yfir 154 þök síðan 2020. Á þakskiptum veitum við 10 ára ábyrgð.

Hvaða bárujárn hentar þínu húsi?

Efni Útlit Kostir Dæmi úr verkum okkar
Aluzink-bárujárn 0,6 mm Málmgrátt Sterkt, tæringarþolið, gott verð – algengasta valið Rjúpufell (um 2.400 m²), Miðhraun 6 (um 1.200 m²)
Litað bárujárn Hvítt, grátt, svart o.fl. Verksmiðjuhúð ver járnið, engin málning fyrstu árin Hjúkrunarheimilið Eir, Gullengi 1 (hvítt), Fróðengi 14–16 (hvítt)
Læst klæðning Slétt, engar sýnilegar festingar Nútímalegt útlit, hentar kvistum og sérstökum formum Fannafold 16

Nánar um kosti og galla hvers efnis í greininni Bárujárn eða læst klæðning?

Nýtt aluzink-bárujárnsþak á fjölbýlishúsum við Rjúpufell
Rjúpufell 42–48 og 25–35 – um 2.400 m² af nýju aluzink-bárujárni.

Svona leggjum við bárujárnsþak

  1. Rif og förgun – gamla járnið, pappinn og lekturnar fjarlægð og efnið flokkað.
  2. Undirlag – borðaklæðning og sperrur skoðaðar; fúið timbur endurnýjað.
  3. Pappi eða öndunardúkur – vatnsvörnin undir járninu.
  4. Lektun – oft tvöföld lektugrind svo þakið lofti vel og raki safnist ekki undir járninu.
  5. Bárujárnið lagt – rétt skörun, þakskrúfur með þéttiskífum, kjöljárn og kúlukjölur.
  6. Frágangur – áfellur, kantar, rennur, niðurföll, snjógildrur, þakventlar og þakgluggar eftir þörfum.

Frágangurinn ræður endingunni: í íslensku slagveðri lekur þak við kjöl, áfellur og festingar löngu áður en heil plata gefur sig. Þess vegna leggjum við mesta áherslu á hann.

Frítt tilboð

Sendu okkur stutta lýsingu og myndir – við skoðum, mælum og gerum skýrt tilboð. Sími 690 3355.

Fá frítt tilboð →

Ending og viðhald bárujárnsþaks

Vel lagt bárujárnsþak endist í áratugi. Það sem lengir líftímann: góð loftun undir járninu, heilar festingar, hreinar rennur og málning í tíma á ómáluðu járni. Litað bárujárn þarf ekki málningu fyrstu árin. Þegar ryðið er komið í gegn á stórum flötum, festingar farnar að losna víða og pappinn undir ónýtur er komið að þakskiptum – þangað til dugar oft þakviðgerð.

Hvað kostar nýtt bárujárnsþak?

Verðið ræðst af stærð þaksins, halla og lögun, ástandi undirlagsins, efnisvali og aðgengi. Við skoðum þakið, mælum og gerum skýrt tilboð – frítt og án skuldbindingar. Lestu hvað ræður verðinu á þakskiptum.

Bárujárnsþök sem við höfum lagt

Sjá öll þakverkin á síðunni Þakskipti og þakviðgerðir.

Algengar spurningar

Hvað er aluzink?

Aluzink er stál með húð úr áli og sinki sem ver það gegn tæringu. Það er algengasta þakjárnið á Íslandi og það sem við notum oftast.

Hvort er betra, aluzink eða litað bárujárn?

Aluzink er hagkvæmt og endingargott. Litað bárujárn kostar aðeins meira en kemur með verksmiðjuhúð í lit og þarf ekki málningu fyrstu árin. Valið fer eftir útliti hússins og óskum þínum.

Hvað endist bárujárnsþak lengi?

Vel lagt og vel viðhaldið bárujárnsþak endist í áratugi. Loftun, festingar og málning í tíma ráða mestu.

Þarf að lekta þakið?

Við lektum flest þök sem við skiptum um – oft með tvöfaldri lektugrind – svo loft leiki undir járninu og raki komist burt. Það lengir líftíma þaksins.

Getið þið sett bárujárn á flatt þak?

Bárujárn þarf ákveðinn halla. Á flötum þökum notum við þakpappa eða þakdúk – sjá Kólguvað 7 í verkasafninu.

Hvað tekur langan tíma að leggja nýtt bárujárnsþak?

Algengt einbýlishúsaþak tekur eina til tvær vikur ef veður leyfir. Miðhraun 6, um 1.200 m², tók um 20 vinnudaga.