Þakviðgerðir – þegar þakið lekur eða er farið að gefa sig
Ekki þarf alltaf nýtt þak. Oft er hægt að stöðva leka og lengja líftíma þaksins með markvissri viðgerð – ef gripið er inn í tímanlega. Við finnum hvar lekur, lögum orsökina og segjum þér hreinskilnislega hvort viðgerð borgar sig eða hvort komið sé að þakskiptum.
Algengustu þakviðgerðir
- Lekaviðgerðir – leki við kjöl, skotrennur, áfellur, þakglugga, kvisti og skorsteina.
- Skipt um einstakar plötur – ryðgaðar eða skemmdar bárujárnsplötur og lausar festingar.
- Nýjar festingar – ryðgaðir naglar og skrúfur eru algeng orsök leka á eldri þökum.
- Kjöljárn, áfellur og flasningar – endurnýjuð þar sem frágangur hefur gefið sig.
- Þakgluggar og ofanljós – þéttingar, áfellur eða nýir Velux-gluggar.
- Rennur og niðurföll – stíflur, leki og nýjar rennur.
- Fúið timbur – borðaklæðning og sperrur lagfærð þar sem raki hefur komist að.
Þakviðgerðir á flötum þökum og þakpappa
Á flötum og lítið hallandi þökum verður leki oftast við samskeyti í þakpappa eða þakdúk, við niðurföll, á köntum og þar sem lagnir og loftræsting fara upp í gegnum þakið. Við gerum við skemmdir í pappa og dúk, endurnýjum frágang við niðurföll og kanta og metum hvort hægt sé að bæta vatnshalla svo vatn standi ekki á þakinu.
Hvernig fer þakviðgerð fram?
- Skoðun og myndir – þú sendir myndir eða við skoðum þakið og rakamerki innandyra.
- Orsök fundin – við förum yfir kjöl, skotrennur, áfellur, festingar, þakglugga og niðurföll.
- Tilboð – þú færð skýrt tilboð í viðgerðina og ráðleggingu um hvort viðgerð eða nýtt þak borgi sig.
- Viðgerð og frágangur – skemmt efni er fjarlægt, gert við og gengið frá svo þakið sé þétt.
Þakrennur, þakkantar og áfellur eru oft hluti af sama verki – sjá þakrennur og þakkanta og þakglugga.
Viðgerð eða nýtt þak?
Ef lekur á einum stað og járnið er annars heilt dugar oftast viðgerð. Ef lekur víða, járnið er ryðgað í gegn, pappinn ónýtur eða timbrið rakt, borgar sig yfirleitt að skipta um þakið í heild í stað þess að elta leka ár eftir ár. Á þakskiptum veitum við 10 ára ábyrgð.
Lestu líka leki á þaki – orsakir og fyrstu viðbrögð og hvað kostar að skipta um þak.
Þakreiknivélin
Heimilisfangið dugar – fáðu frítt tilboð í nýtt þak.
Dæmi um viðgerðir og endurbætur á þökum
- Klapparstígur 5 og 5a – þak- og gluggaviðgerðir, 13 nýir þakgluggar og ofanljós.
- Víðihlíð 20 – nýtt járn, Velux-gluggar og frágangur við kvisti.
- Gullengi 1 – nýtt þak á fjölbýlishúsi eftir langvarandi leka.
- Kólguvað 7 – flatt þak endurbyggt með nýjum vatnshalla.

