Klapparstígur 5 og 5a – Þak- og gluggaviðgerðir – ljósmynd 1

Þak- og gluggaviðgerðir á fjölbýlishúsi í miðbænum – nýtt þak, þakgluggar, ofanljós og endurglerjun.

Klapparstígur 5 og 5a er fjölbýlishús í miðbæ Reykjavíkur. Húsfélagið efndi til verðkönnunar í upphafi árs 2025 undir stjórn verkfræðistofu og var samið við Byggingu og Viðhald um þak- og gluggaviðgerðir.

Framkvæmdir hófust í júlí 2025. Um 600 m² af bárujárni, pappa og þakgluggum voru rifin, nýr öndunardúkur lagður á borðaklæðninguna og tvöföld lektugrind sett ofan á. Þakið var klætt nýju hvítu aluzink-bárujárni, settir 13 nýir þakgluggar og sex ofanljós hækkuð og endurnýjuð. Nýjar kantáfellur, þakhattar yfir steyptum göflum, kjöljárn, álrennur með rafhitun, niðurföll og snjógildrur fullkláruðu þakið.

Samhliða voru gluggar hússins lagfærðir: fúnir hlutar skornir úr og nýir sponsaðir í, um 250 m² af gleri endurnýjuð með nýjum glerlistum, gluggakerfi millibyggingar yfirfarið og nýjar álflasningar fræstar inn í útveggi. Lokaúttekt fór fram í lok árs 2025.

Um verkið

  • Staðsetning: Klapparstígur 5 og 5a, Reykjavík
  • Verktími: júlí–desember 2025
  • Verkkaupi: Húsfélag
  • Umfang: ca. 600 m² þak og um 250 m² endurglerjun
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Rif á bárujárni, pappa og þakgluggum (um 600 m²)
  • Nýr öndunardúkur og tvöföld lektugrind (21×70 og 34×70)
  • Nýtt 0,6 mm aluzink-bárujárn, hvítt RAL 9010
  • 13 nýir þakgluggar og sex ofanljós endurnýjuð og hækkuð
  • Nýjar álrennur með rafhitun, niðurföll, snjógildrur og þakhattar
  • Gluggaviðgerðir, endurglerjun og nýjar álflasningar við glugga

Efni

  • Aluzink-bárujárn 0,6 mm RAL 9010
  • Öndunardúkur (SIGA Majcoat)
  • Álrennur
  • Einangrunargler

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →