Hverafold 1–3 – Þakskipti á verslunarmiðstöð – ljósmynd 1

Nýtt bárujárnsþak á verslunarmiðstöðina í Foldahverfi, þar sem eldra valsað þakstál frá 1980 var komið á tíma.

Hverafold 1–3 er verslunarmiðstöð í Foldahverfi í Grafarvogi. Upprunalega þakið frá 1980 var klætt völsuðu þakstáli með innbyggðu drenkerfi sem ekki er lengur framleitt, svo ekki var hægt að skipta einfaldlega um plötur.

Sumarið 2023 fjarlægði Bygging og Viðhald gamla þakstálið og byggði þakið upp á nýtt með tvöfaldri lektun, 21×45 og 45×95, áður en nýtt bárujárn var lagt. Þakið er með um 23° halla og um 50 m af rennum. Samhliða var gengið frá rennum og loftunum.

Í sama verki voru tveir gluggar með fúnum körmum endurnýjaðir og aðrir gluggar fengu nýja timbur- og gúmmílista og lagfærð drenop.

Árið 2025 var fyrirtækið aftur kallað til vegna leka í öðrum hluta þaksins. Gert var við til bráðabirgða og lagt fram tilboð í endurnýjun hans.

Um verkið

  • Staðsetning: Hverafold 1–3, Reykjavík
  • Verktími: júlí–ágúst 2023
  • Verkkaupi: Fyrirtæki
  • Umfang: ca. 475–600 m² þak
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Rif á upprunalegu völsuðu þakstáli frá 1980
  • Ný tvöföld lektun (21×45 og 45×95) í stað innbyggðs drenkerfis
  • Nýtt bárujárn, rennur og loftanir
  • Endurnýjun tveggja fúinna glugga
  • Nýir timbur- og gúmmílistar og lagfærð drenop á öðrum gluggum

Efni

  • Bárujárn
  • Lektur 21×45 og 45×95

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →