Góð hurð skiptir miklu fyrir öryggi, einangrun og útlit hússins. Við tökum að okkur hurðaskipti fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki – útihurðir, svalahurðir, rennihurðir og bílskúrshurðir. Þú færð tilboð í allan pakkann: hurðina, ísetninguna og fráganginn.

Fá tilboð í nýja hurð

Hurðir sem við skiptum um

  • Útihurðir – aðalinngangar í einbýli, raðhús og fjölbýli, með eða án glugga og hliðarglugga.
  • Svalahurðir – oft skipt um samhliða gluggum, t.d. sem svalaeining með glugga og hurð.
  • Rennihurðir – út á pall eða svalir þar sem pláss er lítið.
  • Bílskúrshurðir og þjónustuhurðir – eftir aðstæðum.

Ný útihurð sett í – hurðaskipti hjá Byggingu og Viðhaldi

Timbur eða álklætt timbur?

Timburhurðir eru hlýlegar og klassískar en þarf að mála reglulega. Álklæddar timburhurðir eru með álklæðningu að utan sem ver timbrið fyrir veðri og þarfnast minna viðhalds, en eru með timbri að innan. Við hjálpum þér að velja lit, opnun, læsingar og gler, og pöntum hurðina eftir nákvæmri mælingu.

Hvenær er kominn tími á nýja hurð?

  • Hurðin dregur, lokast illa eða læsing er orðin léleg
  • Trekkur eða kuldi kemur meðfram hurðinni
  • Fúi í karmi eða þröskuldi
  • Raki eða leki við þröskuld í slagveðri
  • Þú vilt betra öryggi, betri einangrun eða nýtt útlit

Svona fer verkið fram

  1. Þú sendir mynd og gróf mál í Gluggareiknivélinni – málin þurfa ekki að vera nákvæm.
  2. Við sendum þér tilboð í hurð og ísetningu.
  3. Við mælum nákvæmlega á staðnum og pöntum hurðina.
  4. Gamla hurðin er fjarlægð, sú nýja sett í, þéttuð og gengið frá að innan og utan.

Sjá einnig gluggaskipti og glerskipti, og dæmi um glugga- og hurðaskipti í Ugluhólum 10.

Gluggareiknivélin: Skráðu gluggana og hurðirnar, settu inn gróf mál og mynd og fáðu frítt tilboð í allan pakkann – gluggar, hurðir og ísetning, allt á einum stað. Opna Gluggareiknivélina →

Algengar spurningar

Er ísetning innifalin í tilboðinu?

Já. Við gerum tilboð í allan pakkann – hurðina, ísetninguna og fráganginn – allt á einum stað.

Hvað tekur langan tíma að skipta um útihurð?

Sjálf ísetningin tekur yfirleitt einn dag. Afgreiðslutími hurðarinnar frá framleiðanda ræður mestu um hvenær hægt er að byrja.

Getið þið skipt um svalahurð og glugga í sama verki?

Já, það er algengt að skipta um svalaeiningu með glugga og hurð samtímis.

Hvaða upplýsingar þurfið þið fyrir tilboð?

Mynd af hurðinni að utan og gróf mál, breidd × hæð. Þú getur sent þetta í Gluggareiknivélinni á örfáum mínútum.