Nýtt fjölbýlishús í Vogabyggð klætt með loftræstri báruálsklæðningu, auk þéttinga, lekaviðgerða og frágangs við glugga.
Húsfélag fjölbýlishúsanna við Trilluvog 1–9 og Kuggavog 15–19 í Vogabyggð réð Bygging og Viðhald til að klæða húsin loftræstri álklæðningu og gera við galla sem komið höfðu fram, m.a. leka við glugga og inngöngudyr. Verkið var unnið eftir verklýsingu og magnskrá óháðs eftirlitsaðila og gert upp í mánaðarlegum framvindum.
Útveggir voru einangraðir með steinull, sett upp álundirkerfi og loftræst báruálsklæðning, að mestu hvít en með gylltum áherslum. Gengið var frá áláfellum við glugga, hurðir, þakkant og hæðarskil, vatnsþétt við steypuskil og glugga, gert við sprungur og svalaskilveggir teknir niður og settir upp aftur. Samhliða var unnið að lekaviðgerðum, lagfæringum á loftatúðum og endurnýjun niðurfalla.
Meginhluti verksins fór fram frá desember 2024 til ágúst 2025, og lokafrágangur samkvæmt athugasemdalista fór fram á árinu 2026.
Um verkið
- Staðsetning: Trilluvogur 1–9 / Kuggavogur 15–19, Reykjavík
- Verktími: desember 2024 – ágúst 2025 (lokafrágangur 2026)
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: ca. 3.200 m² loftræst álklæðning
- Staða: Lokið
Verkþættir
- 25 mm steinull dýbluð á steypta útveggi og álundirkerfi sett upp
- Loftræst báruálsklæðning (RAL 9010 og gyllt bára) með 100–150 mm loftbili
- Áláfellur við glugga og hurðir, vatnsbretti, hæðarskil og þakkant
- Vatnsþétting við steypuskil og glugga, sprunguviðgerðir og endurfúgun
- Niðurtaka og enduruppsetning svalaskilveggja og breytingar á handriðum
- Endurnýjun þakniðurfalla og lagfæringar á loftatúðum og lekum
Efni
- Báruál 18/76 (RAL 9010 og gyllt)
- Álundirkerfi
- Steinull 25 mm
- Áláfellur og vatnsbretti

