Gluggaviðgerðir – þegar ekki þarf nýjan glugga
Ekki þarf alltaf að skipta um glugga. Fúi í neðri hluta karms, léleg þétting, móða milli glerja eða fag sem lokast illa eru allt hlutir sem má laga. Við gerum við glugga á einbýlishúsum, fjölbýlishúsum og atvinnuhúsnæði – og segjum þér heiðarlega hvenær gluggaskipti borga sig frekar en viðgerð.
Það sem við gerum við
| Vandamál | Viðgerð |
|---|---|
| Fúi í karmi eða pósti | Fúinn viður skorinn burt, nýr viður felldur í, grunnað og málað. |
| Móða milli glerja / sprungið gler | Glerskipti – nýtt einangrunargler í sama karm. |
| Trekkur og dragsúgur | Nýjar þéttingar og kíttun við karm. |
| Fag sem lokast illa | Lamir og lokunarbúnaður stilltir eða endurnýjaðir. |
| Leki við glugga | Orsök fundin: vatnsbretti, áfellur, kíttun eða múr í kring – og lagað. |
| Flögnuð málning | Skafið, grunnað og málað. |

Viðgerð eða nýir gluggar?
Ef fúinn nær í gegnum karminn, glerið er einfalt og glugginn er kominn á fjórða áratuginn er nýr gluggi yfirleitt betri fjárfesting en viðgerð. Ef skemmdin er staðbundin og karmurinn annars heill borgar viðgerð sig. Við metum þetta á staðnum – frítt – og gefum þér verð í hvort tveggja ef við á.
Gluggareiknivélin: skráðu gluggana og hurðirnar, gróf mál og mynd – og fáðu frítt tilboð í glugga, hurðir og ísetningu. Opna Gluggareiknivélina →
Frítt tilboð
Sendu okkur stutta lýsingu og myndir – við skoðum, mælum og gerum skýrt tilboð. Sími 690 3355.
Dæmi úr verkum okkar
- Klapparstígur 5 og 5a – þak- og gluggaviðgerðir.
- Hrísmóar 1 – múrviðgerðir, glerskipti og málun á 11 hæða fjölbýli.
- Hrísmóar 1, 3 og 5 – þakskipti, gluggar og múrviðgerðir.
Við skiptum líka um glugga, sjá Gluggar og hurðir, og gerum við múr í kringum glugga, sjá múrviðgerðir.

