Skipt um 73 glugga í fjölbýlishúsi í Vesturbæ, í nánu samráði við húsfélag og íbúa.
Húsfélagið á Hjarðarhaga 60–64 í Vesturbæ Reykjavíkur samdi við Byggingu og Viðhald um að skipta um alla glugga hússins, alls 73 glugga í níu stærðum. Gluggarnir voru framleiddir af Gluggatækni eftir mælingum og teikningum sem voru yfirfarnar með húsfélaginu, m.a. til að útfæra aukaopnanleg fög í eldhúsgluggum að óskum íbúa.
Ísetning hófst í desember 2025 og var byrjað á gluggum í stigagöngum. Vinnunni var hagað í samráði við íbúa svo fólk gæti verið heima þegar röðin kom að þeirra íbúð. Eldri gluggum var fargað og nýju gluggarnir felldir í og gengið frá þeim að innan og utan.
Í febrúar 2026 voru allir gluggar komnir í og lokafrágangi lauk í byrjun mars 2026.
Um verkið
- Staðsetning: Hjarðarhagi 60–64, Reykjavík
- Verktími: desember 2025–mars 2026
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: 73 gluggar
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Mælingar og samræming framleiðsluteikninga við framleiðanda og húsfélag
- Útfærsla opnanlegra faga að óskum íbúa
- Rif og förgun eldri glugga
- Ísetning 73 nýrra glugga, byrjað á stigagöngum
- Frágangur að innan og utan
- Lyfta, flutningur og förgun
Efni
- Timburgluggar (Gluggatækni)

