Þakskipti eru okkar sérgrein: við rífum gamla járnið og pappann, lagfærum undirlagið og leggjum nýtt þak – bárujárn eða aluzink, læsta klæðningu eða þakpappa, tjörupappa og þakdúk á flöt þök – ásamt nýjum rennum, þakköntum og áfellum.
Hvenær er komið að nýju þaki?
Þak endist í áratugi ef það er vel lagt – en þegar ryðið er komið í gegn á stórum flötum, festingar losna víða og pappinn undir er ónýtur dugar þakviðgerð ekki lengur. Þá borgar sig að leggja nýtt þak í einu lagi frekar en að elta leka ár eftir ár. Við höfum lagt yfir 154 þök síðan 2020 – á einbýlishúsum, fjölbýlishúsum, skólum, hjúkrunarheimilum og atvinnuhúsnæði – og veitum 10 ára ábyrgð á þakskiptum.
Merki um að þakið sé komið á tíma
- Ryð í gegnum járnið, ekki bara á yfirborði.
- Lekar á fleiri en einum stað, sem koma aftur eftir viðgerð.
- Lausar eða ryðgaðar festingar um allt þakið.
- Fúi í borðaklæðningu eða sperrum sem sést innan frá.
- Pappi undir járni sem er orðinn stökkur eða rifinn.

Hvað er innifalið í nýju þaki?
| Verkþáttur | Hvað gerum við |
|---|---|
| Rif og förgun | Gamalt járn, pappi og lektur fjarlægð og flokkað. |
| Undirlag | Borðaklæðning og sperrur skoðaðar; fúið timbur endurnýjað – þú færð að vita um það strax. |
| Pappi / öndunardúkur | Vatnsvörnin undir járninu. |
| Lektun | Oft tvöföld lektugrind svo þakið lofti vel. |
| Nýtt þakefni | Aluzink- eða litað bárujárn, læst klæðning eða pappi/dúkur á flöt þök. |
| Frágangur | Kjöljárn, áfellur, rennur og niðurföll, snjógildrur, þakventlar og þakgluggar. |
Frítt tilboð
Sendu okkur stutta lýsingu og myndir – við skoðum, mælum og gerum skýrt tilboð. Sími 690 3355.
Nýtt þak – dæmi úr verkum okkar
- Rjúpufell 42–48 og 25–35 – um 2.400 m² aluzink á tveimur fjölbýlishúsum.
- Íþróttahúsið Digranesi – um 1.940 m² fyrir Kópavogsbæ.
- Hjúkrunarheimilið Eir – um 1.545 m² litað bárujárn.
- Miðhraun 6 – um 1.200 m² á um 20 vinnudögum.
- Fannafold 16 – læst klæðning á einbýlishúsi.
- Kólguvað 7 – nýtt flatt þak með pappa.
Sjá öll þakverkin á síðunni Þakskipti og þakviðgerðir. Við vinnum um allt höfuðborgarsvæðið: Reykjavík, Kópavogur og Hafnarfjörður.
Hvað kostar nýtt þak?
Verðið ræðst af stærð og lögun þaksins, ástandi undirlagsins, efnisvali og aðgengi. Við skoðum, mælum og gerum sundurliðað tilboð – frítt. Nánar í greininni Hvað kostar að skipta um þak? og fyrir húsfélög í leiðarvísi um þakskipti fyrir húsfélög.

