Þakskipti í Hafnarfirði – nýtt þak og þakviðgerðir
Í Hafnarfirði höfum við endurnýjað þök á skólum fyrir Hafnarfjarðarbæ, fjölbýlishúsum, raðhúsum og atvinnuhúsnæði. Hér fyrir neðan eru 5 þakverk sem við höfum lokið í Hafnarfirði, samtals um 4.430 m² þar sem stærð er skráð. Verkkaupar eru meðal annars Hafnarfjarðarbær, auk húsfélaga og fyrirtækja.
Þakverk í Hafnarfirði
- Setbergsskóli – 2.085 m²: Ný uppbygging þaks, bárujárn og rakavarnarlag innanhúss.
- Hvaleyrarskóli – 1.280 m²: Þak skólans endurnýjað sumarið 2025 ásamt rakavarnarlagi innanhúss.
- Breiðvangur 24–28 – 1.065 m²: Aluzink-bára, nýr pappi, rennur, túður og þaklúgur á fjölbýlishúsi.
- Lækjarhvammur – sex hús: Byrjaði með einu tilboði og endaði í nýjum þökum á sex húsum í sömu götu.
- Kaplahraun 14: Nýtt þak og bárujárnsklæðning á atvinnuhúsnæði á tæpum tveimur vikum.
Hvað er innifalið í þakskiptum?
Rif og förgun á gömlu járni og pappa, yfirferð á borðaklæðningu og sperrum, nýr pappi eða öndunardúkur, oft tvöföld lektun, nýtt aluzink- eða litað bárujárn eða læst klæðning, og allur frágangur – kjöljárn, skotrennur, áfellur, rennur, niðurföll og þakgluggar eftir þörfum. Á þakskiptum veitum við 10 ára ábyrgð. Nánar um þakskipti og þakviðgerðir og hvað kostar að skipta um þak.
Þakreiknivélin
Heimilisfangið dugar – fáðu frítt tilboð í nýtt þak.
Er þakið að leka? Sjá þakviðgerðir og lekaviðgerðir. Önnur sveitarfélög: Reykjavík · Kópavogur.

