
Þakskipti á fjölbýlishúsi eru stór ákvörðun fyrir húsfélag – bæði fjárhagslega og fyrir daglegt líf íbúanna. Í þessum leiðarvísi förum við skref fyrir skref yfir ferlið: frá fyrsta ástandsmati að lokaúttekt, og hvað stjórn húsfélags þarf að hafa í huga.
Við höfum skipt um þök á fjölda fjölbýlishúsa á höfuðborgarsvæðinu – allt frá þriggja hæða stigagöngum upp í ellefu hæða hús.
Ferlið í átta skrefum
- Ástandsmat. Við skoðum þakið innan frá og utan frá og segjum hvað þarf að gera – og hvað getur beðið.
- Tilboð. Skýrt, sundurliðað tilboð sem hægt er að leggja fyrir húsfund.
- Samanburður. Ef fleiri tilboða er aflað þarf að bera saman sama umfang – sjá gátlista um samanburð tilboða.
- Húsfundur og ákvörðun. Stjórn leggur tilboðið fyrir löglega boðaðan húsfund.
- Samningur og tímaáætlun. Verktími, greiðslur, ábyrgð og samskipti fest niður.
- Upplýsingar til íbúa. Hvenær verkið hefst, hvar vinnusvæðið er og hvern á að hafa samband við.
- Framkvæmd. Rif, undirlag, pappi, lektun, nýtt járn og frágangur. Þakinu er lokað í lok hvers dags.
- Úttekt og ábyrgð. Verkið tekið út með stjórn húsfélagsins. Á þakskiptum veitum við 10 ára ábyrgð.

Húsfundurinn
Þakskipti eru sameiginlegt viðhald og ákvörðun um þau er tekin á löglega boðuðum húsfundi samkvæmt lögum um fjöleignarhús. Til að fundurinn gangi vel er gott að hafa:
- ástandsmat með myndum sem sýna af hverju þarf að fara í verkið,
- sundurliðað tilboð og tímaáætlun,
- upplýsingar um hvað gerist ef eitthvað óvænt kemur í ljós,
- upplýsingar um ábyrgð og fyrri verk verktakans.
Við getum mætt á húsfund, kynnt verkið og svarað spurningum íbúa ef þess er óskað.
Íbúarnir á meðan verkið stendur
Íbúar búa yfirleitt í húsinu allan tímann. Við leggjum áherslu á:
- Skýr samskipti – einn tengiliður fyrir húsfélagið og upplýsingar áður en hvert verkstig hefst.
- Öryggi – vinnusvæði afmarkað og öruggar gönguleiðir að inngöngum.
- Snyrtimennsku – rusl fjarlægt jafnóðum og svæðið þrifið í verklok.
- Veðurvarnir – þakinu lokað í lok dags og breitt yfir ef veður breytist.
Að taka fleira í leiðinni
Vinnupallar og uppsetning eru stór hluti kostnaðar. Þess vegna borgar sig oft að taka fleira í sömu umferð – glugga, múrviðgerðir, klæðningu eða málningu. Á Hrísmóum 1, 3 og 5 endurnýjuðum við tvö þök á 18 dögum auk glugga, múrs og málunar, og í Bólstaðarhlíð 28 nýtt þak og 19 nýja glugga. Við sjáum um þetta allt á einum stað – sjá gluggaskipti, klæðningar og utanhúss viðhald.
Húsfélag að skoða þakið?
Við gerum ástandsmat og sundurliðað tilboð sem hægt er að leggja fyrir húsfund – frítt og án skuldbindingar.
Dæmi um þakskipti í fjölbýli
| Verk | Stærð | Hvað var gert |
|---|---|---|
| Rjúpufell 42–48 og 25–35 | um 2.400 m² | Nýtt aluzink-bárujárn á tveimur fjölbýlishúsum, fúin borðaklæðning endurnýjuð |
| Breiðvangur 24–28 | um 1.065 m² | Aluzink-bára, nýr pappi, rennur, túður og þaklúgur |
| Rekagrandi 6–8 og Seilugrandi 1–3 | um 900 m² | Brött þök með fjölda þakglugga, kvistum og innfelldum svölum |
| Krummahólar 2 | um 575 m² | Þakskipti á 11 hæða fjölbýlishúsi |
| Fróðengi 14–16 | um 543 m² | Hvítt bárujárn, ný lektun og snjógildrur |
| Lækjarhvammur | sex hús | Byrjaði með einu tilboði og endaði í nýjum þökum á sex húsum í sömu götu |
Algengar spurningar
Hver tekur ákvörðun um þakskipti í fjölbýli?
Ákvörðunin er tekin á löglega boðuðum húsfundi samkvæmt lögum um fjöleignarhús. Stjórn húsfélagsins undirbýr málið og leggur fram tilboð og upplýsingar.
Getur þú mætt á húsfund?
Já, við getum kynnt verkið á húsfundi og svarað spurningum íbúa ef stjórnin óskar þess.
Hvað tekur langan tíma að skipta um þak á fjölbýli?
Það fer eftir stærð og aðstæðum. Tvö þök á Hrísmóum voru endurnýjuð á 18 dögum; stærri verk taka lengri tíma. Þú færð tímaáætlun með tilboðinu.
Þurfa íbúar að flytja út?
Nei. Íbúar búa í húsinu á meðan verkið stendur. Þakinu er lokað í lok hvers dags.
Er hægt að taka glugga og múr í sömu umferð?
Já, og það borgar sig oft því vinnupallarnir nýtast í allt. Við sjáum um þak, glugga, múrviðgerðir og klæðningar á einum stað.

