Þakskipti í Kópavogi – nýtt þak og þakviðgerðir
Við höfum unnið fjölda þakverka í Kópavogi – fyrir Kópavogsbæ á skólum, leikskólum og íþróttahúsi, og fyrir húsfélög og einstaklinga. Hér fyrir neðan eru 7 þakverk sem við höfum lokið í Kópavogi, samtals um 4.745 m² þar sem stærð er skráð. Verkkaupar eru meðal annars Kópavogsbær, auk húsfélaga og fyrirtækja.
Þakverk í Kópavogi
- Íþróttahúsið Digranesi – 1.940 m²: Nýtt þak á þremur mánuðum sumarið 2024.
- Álfhólsskóli Digranesi – 920 m²: Tvö þök með nýju járni, lektum og loftun.
- Leikskólinn Álfaheiði – 720 m²: Þak leikskólans endurnýjað sumarið 2024.
- Leikskólinn Furugrund – 630 m²: Nýtt járn, dúkur, kantar, rennur og gaflklæðning.
- Furugrund 50 – 260 m²: Ný borðaklæðning og aluzink-bárujárn, múrviðgerðir og sögun svalahandriða.
- Álfhólsvegur 72 – 155 m²: Nýr pappi og grátt aluzink-bárujárn á þaki frá byggingarárum hússins.
- Skógarhjalli 17 – 120 m²: Nýtt hvítt bárujárnsþak eftir lokað útboð – lokaúttekt án athugasemda.
Hvað er innifalið í þakskiptum?
Rif og förgun á gömlu járni og pappa, yfirferð á borðaklæðningu og sperrum, nýr pappi eða öndunardúkur, oft tvöföld lektun, nýtt aluzink- eða litað bárujárn eða læst klæðning, og allur frágangur – kjöljárn, skotrennur, áfellur, rennur, niðurföll og þakgluggar eftir þörfum. Á þakskiptum veitum við 10 ára ábyrgð. Nánar um þakskipti og þakviðgerðir og hvað kostar að skipta um þak.
Þakreiknivélin
Heimilisfangið dugar – fáðu frítt tilboð í nýtt þak.
Er þakið að leka? Sjá þakviðgerðir og lekaviðgerðir. Önnur sveitarfélög: Reykjavík · Hafnarfjörður.

