Um 1.280 m² þak Hvaleyrarskóla endurnýjað sumarið 2025 fyrir Hafnarfjarðarbæ – þak og rakavarnarlag innanhúss.
Sumarið 2025 endurnýjaði Bygging og Viðhald um 1.280 m² af þaki Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði eftir útboð Hafnarfjarðarbæjar. Verkið var unnið undir eftirliti ráðgjafa bæjarins.
Eldri þakklæðning, pappi, þakgluggar og rennur voru rifin. Nýr þakdúkur var lagður, tvöföld lektun sett upp og þakið klætt nýju járni. Í stað hluta eldri þakglugga kom læst álklæðning, og áfellur við þakglugga, kjöljárn, skotrennur, þakrennur og frágangur á langhliðum og göflum voru endurnýjuð.
Innanhúss var loftaefni rifið, varmaeinangrun bætt og nýtt rakavarnarlag sett upp á um 1.330 m². Kerfisloft voru tekin niður og sett upp aftur og gólf skólans varin á meðan. Framkvæmdir hófust í júní 2025 og var meginhluta verksins lokið á um tveimur mánuðum; síðasta framvinda var gerð upp í september.
Um verkið
- Staðsetning: Hvaleyrarskóli, Hafnarfjörður
- Verktími: júní–september 2025
- Verkkaupi: Hafnarfjarðarbær
- Umfang: ca. 1.280 m² þak
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Rif á þakklæðningu, pappa, þakgluggum og þakrennum (1.280 m²)
- Nýr þakdúkur, tvöföld lektun og nýtt þakjárn
- Læst álklæðning í stað eldri þakglugga og áfellur við þakglugga
- Kjöljárn, skotrennur, nýjar þakrennur og frágangur á langhlið og göflum
- Rif á loftaefni og nýtt rakavarnarlag innanhúss (um 1.330 m²)
- Kerfisloft tekið niður og sett upp aftur, gólf varin á verktíma
Efni
- Bárujárn
- Þakdúkur
- Lektur 21×45 og 45×95
- Læst álklæðning
- Rakavarnarlag

