Vantar þig smiði eða verktaka í viðhald, endurbætur eða framkvæmdir? Bygging og Viðhald ehf. er byggingaverktaki á höfuðborgarsvæðinu með eigin smiði og vinnuflokka. Við tökum að okkur verk fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki – frá þakskiptum og gluggaskiptum yfir í klæðningar, múrviðgerðir og innanhússfrágang. Þú færð eitt tilboð og einn tengilið – allt á einum stað.
Fá frítt tilboð hjá verktakaSmiðir og verktakar fyrir heimili og húsfélög
Hvort sem verkið er lítil viðgerð eða endurnýjun á heilu fjölbýlishúsi byrjum við á því að skoða aðstæður og útskýra hvað þarf að gera. Þú færð skýrt tilboð með umfangi og forsendum, og við sjáum um verkið frá upphafi til enda – efni, vinnu, verkpalla, förgun og frágang.
Verk sem við tökum að okkur
- Þakskipti og nýtt þak og þakviðgerðir – við höfum skipt um 154 þök síðan 2020, yfir 38.500 m².
- Þakrennur, þakkantar og áfellur
- Gluggaskipti, gluggar og hurðir – glerskipti, útihurðir og svalahurðir
- Klæðningar á hús – álklæðning, panill, bárujárn og timburklæðning
- Múrviðgerðir og málun
- Steinsögun, kjarnaborun og sérverk
- Innanhússfrágangur – léttir veggir, kerfisloft, smíði og innréttingar
Af hverju Bygging og Viðhald?
- Allt á einum stað – eitt tilboð, einn tengiliður og ein ábyrgð á verkinu.
- Traustur rekstur – Framúrskarandi fyrirtæki 2026 hjá Creditinfo og Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2024–2026 hjá Viðskiptablaðinu og Keldunni.
- Skýrt ferli – öll verk eru unnin samkvæmt gæðakerfi okkar, frá tilboði að úttekt.
- Reynsla – sjáðu fyrri verk á einbýlishúsum, fjölbýlishúsum, skólum og atvinnuhúsnæði.
Svona fer verkið fram
- Þú sendir stutta lýsingu og myndir í gegnum fyrirspurnarformið, eða notar Þakreiknivélina eða Gluggareiknivélina.
- Við förum yfir aðstæður og mælum á staðnum þegar þarf.
- Þú færð frítt tilboð með sundurliðun og forsendum.
- Við skipuleggjum tímasetningu, vinnum verkið og göngum frá að því loknu.

