Stakkahlíð 1 – Bygging og Viðhald, drónamynd 1

Endurnýjun um 900 m² þaks á kennslubyggingu í Stakkahlíð með nýrri loftaðri uppbyggingu, einangrun og álklæðningu.

Í Stakkahlíð 1 er unnið að endurnýjun þaka á tveggja hæða kennslu- og skrifstofubyggingu. Álklæðning þakanna var farin að tærast og rakaskemmdir komnar í þakuppbyggingu. Bygging og Viðhald vinnur þakverkið sem undirverktaki.

Verkið felst í að rífa veðurkápu þakanna, leggja gufuopinn þakdúk og krosslektun og klæða þökin nýrri álklæðningu ásamt kili, áfellum og þakköntum. Þakrennur og niðurföll eru endurnýjuð, mænisgluggar endurglerjaðir og nýir þakgluggar settir í. Innan frá er þakið endureinangrað, sett nýtt rakavarnarlag og gifsklædd loft í rishæð.

Framkvæmdir hófust í ágúst 2026 og eru verklok áætluð í byrjun nóvember 2026.

Um verkið

  • Staðsetning: Stakkahlíð 1, Reykjavík
  • Verktími: ágúst–nóvember 2026
  • Hlutverk B&V: Undirverktaki í þakverki
  • Umfang: ca. 900 m² þak
  • Staða: Í vinnslu

Verkþættir

  • Rif og förgun eldri þakklæðningar, pappa og þakrenna
  • Gufuopinn þakdúkur og krosslektun
  • Ný álklæðning á þök, kjöl, áfellur og þakkanta
  • Endurnýjun þakrenna og niðurfalla
  • Endurglerjun mænisglugga og nýir þakgluggar
  • Ný einangrun, rakavarnarlag og gifsklædd loft í rishæð

Efni

  • Álklæðning RAL 9010
  • Gufuopinn þakdúkur
  • Steinull
  • Rakavarnarlag
  • Gifsplötur

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →

Myndband