Gluggaskipti í tveimur áföngum í fjölbýlishúsi í Hólahverfi – timburgluggar og svalahurð, hvít að innan og rauð að utan.
Við Þrastahóla 6 í Breiðholti voru gluggar endurnýjaðir í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga voru pantaðar sex einingar frá Gluggatækni, þar á meðal svalahurð, hvítar að innan og rauðar (RAL 3009) að utan.
Gluggarnir voru sóttir, gömlu gluggarnir teknir úr og þeir nýju settir í og þéttir eins og framleiðandi mælir fyrir um, gömlu gluggunum fargað og gengið frá að utan. Eigendur óskuðu svo eftir fleiri gluggum í sama stíl sem voru mældir og settir í í seinni áfanga.
Lokamálsetning var tekin á staðnum fyrir hvorn áfanga áður en pöntun fór í framleiðslu, svo nýju gluggarnir pössuðu nákvæmlega í opin.
Um verkið
- Staðsetning: Þrastahólar 6, Reykjavík (Breiðholt)
- Verktími: 2022–2024 (tveir áfangar)
- Verkkaupi: Húseigendur
- Umfang: Gluggar og svalahurð í tveimur áföngum
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Uppmæling og pöntun timburglugga
- Útskipting á gluggum og svalahurð
- Þétting samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda
- Förgun gamalla glugga og fullnaðarfrágangur að utan
- Seinni áfangi með viðbótargluggum
Efni
- Timburgluggar frá Gluggatækni
- Hvítt að innan, RAL 3009 að utan

