Gluggaviðgerðir – þegar ekki þarf nýjan glugga

Ekki þarf alltaf að skipta um glugga. Fúi í neðri hluta karms, léleg þétting, móða milli glerja eða fag sem lokast illa eru allt hlutir sem má laga. Við gerum við glugga á einbýlishúsum, fjölbýlishúsum og atvinnuhúsnæði – og segjum þér heiðarlega hvenær gluggaskipti borga sig frekar en viðgerð.

Það sem við gerum við

Vandamál Viðgerð
Fúi í karmi eða pósti Fúinn viður skorinn burt, nýr viður felldur í, grunnað og málað.
Móða milli glerja / sprungið gler Glerskipti – nýtt einangrunargler í sama karm.
Trekkur og dragsúgur Nýjar þéttingar og kíttun við karm.
Fag sem lokast illa Lamir og lokunarbúnaður stilltir eða endurnýjaðir.
Leki við glugga Orsök fundin: vatnsbretti, áfellur, kíttun eða múr í kring – og lagað.
Flögnuð málning Skafið, grunnað og málað.
Þak- og gluggaviðgerðir á Klapparstíg 5 og 5a í Reykjavík
Klapparstígur 5 og 5a – þak- og gluggaviðgerðir á gömlu húsi í miðbænum.

Viðgerð eða nýir gluggar?

Ef fúinn nær í gegnum karminn, glerið er einfalt og glugginn er kominn á fjórða áratuginn er nýr gluggi yfirleitt betri fjárfesting en viðgerð. Ef skemmdin er staðbundin og karmurinn annars heill borgar viðgerð sig. Við metum þetta á staðnum – frítt – og gefum þér verð í hvort tveggja ef við á.

Gluggareiknivélin: skráðu gluggana og hurðirnar, gróf mál og mynd – og fáðu frítt tilboð í glugga, hurðir og ísetningu. Opna Gluggareiknivélina →

Frítt tilboð

Sendu okkur stutta lýsingu og myndir – við skoðum, mælum og gerum skýrt tilboð. Sími 690 3355.

Fá frítt tilboð →

Dæmi úr verkum okkar

Við skiptum líka um glugga, sjá Gluggar og hurðir, og gerum við múr í kringum glugga, sjá múrviðgerðir.

Algengar spurningar

Hvað kosta gluggaviðgerðir?

Fer eftir umfangi: ein fúaviðgerð er lítið verk, heilt fjölbýlishús með þéttingum og glerskiptum er stærra. Við skoðum og gerum frítt tilboð.

Gerið þið við gamla timburglugga?

Já. Fúaviðgerðir á timburgluggum eru algengt verk hjá okkur, ekki síst á eldri húsum í Reykjavík.

Er hægt að skipta bara um glerið?

Já, ef karmurinn er heill. Sjá síðuna um glerskipti.

Vinnið þið fyrir húsfélög?

Já, stór hluti verka okkar er fyrir húsfélög. Við gerum ástandsmat á öllum gluggum hússins og tilboð sem hægt er að leggja fyrir húsfund.