Bygging og Viðhald er smiðafyrirtæki með 30 starfsmenn sem tekur að sér allan innanhússfrágang – frá einu kerfislofti í kennslustofu upp í heilar nýbyggingar. Við höfum sett upp þúsundir fermetra af kerfisloftum, veggjaklæðningum og gifsveggjum fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og aðalverktaka, og endurnýjað íbúðir og atvinnuhúsnæði frá grunni. Þú færð einn verktaka sem skipuleggur verkið, stýrir því og vinnur með löggiltum iðnmeisturum þar sem þarf.
Fá tilboð í innanhússfrágangÞað sem við gerum innanhúss
- Kerfisloft – niðurrif eldri lofta og uppsetning nýrra kerfislofta (60×60, 60×120, Ecophon o.fl.), þ.m.t. hreinlætisloft í matvælarýmum og hljóðvistarloft í skólum.
- Léttir veggir og gips – innveggir úr blikkstoðum eða timbri með steinull og gifsi, brunaveggir (EI30/EI60), hljóðveggir og veggir í votrýmum.
- Veggjaklæðningar – timburpanell, plötuklæðningar, hljóðplötur og álklæðning á súlur og veggi.
- Trésmíði og innréttingar – burðarloft og timburbitar, gólfplötur, hurðir, listar, uppsetning og niðurrif innréttinga, rakavarnarlag og einangrun.
- Endurnýjun íbúða, baðherbergja og eldhúsa – niðurrif, nýjar lagnir í samráði við pípara og rafvirkja, veggir, gólf og frágangur.
Fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og aðalverktaka
Stór hluti innanhússverka okkar er unninn fyrir sveitarfélög í skólum og leikskólum – oft á sumrin eða um helgar svo skólastarf raskist ekki – og fyrir fyrirtæki og aðalverktaka í nýbyggingum. Verkin eru unnin eftir verklýsingum og teikningum, gerð upp í mánaðarlegum framvindum og skilað með úttekt eftirlits. Við höfum byggingarstjóra og húsasmíðameistara innanhúss og vinnum samkvæmt gæðakerfi okkar.
Verkin okkar innanhúss
- Nýbyggingar fyrir atvinnulíf – innveggir, brunaveggir, burðarloft, gifsloft og hreinlætiskerfisloft í iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði, m.a. nýbygging í Mjódd (2026).
- Skólar og stofnanir sveitarfélaga – endurnýjun kerfislofta, veggja og innréttinga í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu, oft heilar álmur í senn, unnið í skólafríum.
- Íbúðir og einbýlishús – heildarendurnýjun íbúða, baðherbergja og eldhúsa, t.d. Bergstaðastræti 33.
- Iðnaðarbil og verslunarrými – breytingar og frágangur, t.d. Lyngás 10.
Fleiri verk eru á síðunni um innanhússverk.
Af hverju einn verktaki?
Þegar margir iðnaðarmenn koma að sama verki skiptir samræming öllu. Við sjáum um skipulag, tímaáætlun og samskipti við pípara, rafvirkja og málara, þannig að verkið gengur hraðar og þú hefur einn tengilið frá upphafi til enda. Þurfi að saga eða bora í steypu sjáum við um það sjálf – sjá steinsögun og kjarnaborun.
Innanhússfrágangur
Sendu okkur teikningar eða myndir og stutta lýsingu – við gerum frítt tilboð.


