Trésmíði og innanhússfrágangur fyrir matvælavinnslu og skrifstofur í nýbyggingu Haga við Álfabakka 2: innveggir, burðarloft og kerfisloft.
Álfabakki 2 er ný iðnaðar- og skrifstofubygging í Mjódd þar sem Hagar eru leigutaki og innrétta húsið fyrir matvælaframleiðslu, pökkun og lager á jarðhæð og skrifstofur á annarri hæð. Verkkaupi leitaði verða í trésmíði innanhúss og Bygging og Viðhald tók að sér þann verkþátt.
Verkið nær til rýma Ferskra kjötvara og Eldum rétt á 1. og 2. hæð ásamt sameignarrýmum við lyftukjarna og flóttastigahús. Bygging og Viðhald reisir létta innveggi úr blikkstoðum með steinull, krossvið og gifsi, þar á meðal brunaveggi og veggi í votrýmum, setur upp timburbita og gólfplötur í burðarloftum, einangrar sperruloft og setur upp raka- og mygluþolin gifsloft og hreinlætiskerfisloft. Einnig eru stálsúlur í frystum einangraðar og klæddar áli.
Framkvæmdir hófust í janúar 2026 og hafa staðið samfellt síðan, með mánaðarlegum framvinduuppgjörum við eftirlit verkkaupa. Á lokametrunum hefur verið unnið um helgar til að halda verkáætlun.
Um verkið
- Staðsetning: Álfabakki 2, Reykjavík
- Verktími: janúar–september 2026
- Verkkaupi: Hagar
- Staða: Í vinnslu
Verkþættir
- Léttir innveggir úr blikkstoðum með steinull, krossvið/OSB og gifsi, m.a. brunaveggir (EI60) og veggir í votrýmum
- Timburbitar og reimar í burðarloftum samkvæmt burðarþolsteikningum
- Gólfspónaplötur og hljóðeinangrun í sperruloftum
- Raka- og mygluþolin gifsloft
- Hygiene-kerfisloft (Ecophon) í matvælavinnslurýmum og kjallara
- Einangrun og álklæðning stálsúlna í frystum
- Aukaverk og breytingar í samráði við eftirlit verkkaupa
Efni
- Blikkstoðir og gifsplötur
- Steinull
- Krossviður/OSB
- Ecophon Hygiene og Focus Ds kerfisloft

