Glerskipti og ný opnanleg fög á efri hæðum fjölbýlishúss við Skúlagötu, unnin úr körfulyftu.
Húsfélagið við Skúlagötu 40–40b leitaði til Bygging og Viðhalds vegna glers og opnanlegra faga sem voru komin á tíma. Út frá málum húsfélagsins var gert tilboð í um 31 m² af glerskiptum auk nýrra opnanlegra faga, og fögin voru smíðuð hjá Gluggatækni með SKN176 gleri.
Verkið var að mestu unnið í nóvember og desember 2025. Þar sem gluggarnir eru á efri hæðum hússins var unnið úr körfulyftu. Skipt var um gler, nýju fögin sett í og glerfölsin máluð með sérstakri málningu sem þurrkuð var með hitablásara svo hægt væri að vinna verkið þrátt fyrir haustveður.
Nokkur viðbótarfög í stafngluggunum voru pöntuð í kjölfarið og sett í sumarið 2026.
Um verkið
- Staðsetning: Skúlagata 40–40b, Reykjavík
- Verktími: nóvember 2025 – júní 2026
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: ca. 31 m² gler og um 20 ný opnanleg fög
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Mæling og pöntun á nýju gleri fyrir íbúðir á efri hæðum
- Glerskipti unnin úr körfulyftu á háhýsi
- Ný opnanleg fög með SKN176 gleri smíðuð hjá Gluggatækni og sett í
- Málun glerfalsa með sérstakri málningu og hitablásara til þurrkunar
- Viðbótarfög í stafngluggum sett í sumarið 2026
Efni
- SKN176 gler
- Opnanleg timburfög frá Gluggatækni
- Gler frá Íspan

