Utanhússviðhald fjölbýlishúss í Kópavogi: nýtt þak með borðaklæðningu og aluzink bárujárni, múrviðgerðir og sögun svalahandriða.
Húsfélagið að Furugrund 50 í Kópavogi réðst árið 2026 í heildstætt utanhússviðhald samkvæmt útboðsgögnum og magntöluskrá, með óháðu eftirliti fyrir hönd húsfélagsins.
Bygging og Viðhald hóf verkið á þakinu. Gamla bárujárnið og lekturnar voru rifnar og fargað, þakið klætt með 1″ x 6″ timburborðum, lagður þakpappi og nýtt aluzink bárujárn, alls um 260 m². Síðan voru settar upp nýjar rennur, rennubönd og niðurföll. Að þakinu loknu tóku við múrviðgerðir á útveggjum: sprungur sagaðar upp og fylltar, veggir slípaðir með demantsskífu og filteraðir. Múrviðgerðir reyndust talsvert umfangsmeiri en áætlað var, eins og oft vill verða.
Í verkinu felst einnig að saga niður gömlu steyptu svalahandriðin, pússa svalagólf með réttum halla og setja upp bráðabirgðahandrið þar til ný handrið berast, ásamt viðgerðum á gluggum og glerskiptum. Eftirlitsmaður húsfélagsins hefur lýst ánægju með vinnubrögðin. Verkið var í fullum gangi í september 2026.
Um verkið
- Staðsetning: Furugrund 50, Kópavogur
- Verktími: ágúst–september 2026
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: ca. 260 m² þak, ca. 456 m² útveggir
- Staða: Í vinnslu
Verkþættir
- Rif á gömlu bárujárni, pappa og sperrulektum og förgun
- Ný borðaklæðning 1″ x 6″, þakpappi og nýtt aluzink bárujárn, ca. 260 m²
- Nýjar rennur, rennubönd og niðurföll
- Múrviðgerðir: sögun og viðgerð sprungna, slípun veggja með demantsskífu og filtering
- Steinsögun á steyptum svalahandriðum og pússning svalagólfa
- Gluggaviðgerðir og glerskipti
Efni
- Aluzink bárujárn
- Þakpappi
- 1″ x 6″ borðaklæðning

