Þakskipti á Hjúkrunarheimilinu Eir – nýtt litað bárujárn, tugir nýrra þakglugga og rennur á B-húsi og A-álmu.
Hjúkrunarheimilið Eir í Grafarvogi fól Byggingu og Viðhaldi að endurnýja þök sín í áföngum. Verkið krafðist góðs skipulags þar sem starfsemi heimilisins hélt áfram á meðan.
Fyrsti áfanginn var B-húsið, samkvæmt verksamningi frá maí 2025. Um 1.545 m² af þakjárni og pappa voru rifin og lagt nýtt litað 0,6 mm bárujárn á nýjan pappa. Skipt var um alla 26 þakgluggana og gengið frá í kringum þá innanhúss. Nýjar litaðar stálrennur, niðurföll, kjöljárn og flasningar voru settar upp, stóru þaktúðurnar sérsmíðaðar og húðaðar, og snjógildrur settar á. Framkvæmdir hófust í júlí og var lokaframvinda gerð upp í nóvember 2025.
Í framhaldinu var ráðist í A-álmuna, sem er um 2.400 m² hús. Þar er skipt um um 2.200 m² af bárujárni og 20 þakglugga, borðaklæðning endurnýjuð eftir þörf og nýjar rennur og snjógildrur settar upp. Vinna við A-álmuna hófst í desember 2025 og hélt áfram árið 2026.
Um verkið
- Staðsetning: Hlíðarhús 7, Reykjavík
- Verktími: júlí 2025 – 2026
- Verkkaupi: Hjúkrunarheimilið Eir
- Umfang: B-hús ca. 1.545 m²; A-álma ca. 2.200–2.400 m²
- Staða: Í vinnslu
Verkþættir
- Rif á þakjárni, pappa, rennum og þakgluggum
- Nýtt litað 0,6 mm bárujárn og nýr þakpappi
- 26 nýir þakgluggar á B-húsi og 20 á A-álmu, með frágangi innanhúss
- Litaðar stálrennur, niðurföll, kjöljárn og flasningar
- Stórar þaktúður sérsmíðaðar og húðaðar, viftur aftengdar og tengdar aftur
- Snjógildrur og fallvarnir
Efni
- Litað bárujárn 0,6 mm
- Þakpappi
- Litaðar stálrennur og niðurföll
- Þakgluggar

