Þakskipti á tveimur fjölbýlishúsum í Rjúpufelli 2024 – alls um 2.400 m² af nýju aluzink-bárujárni.
Árið 2024 endurnýjaði Bygging og Viðhald þök á tveimur fjölbýlishúsum í Rjúpufelli í Breiðholti fyrir húsfélögin, undir eftirliti óháðs ráðgjafa.
Á Rjúpufelli 42–48 var gamla bárujárnið og pappinn rifinn af um 975 m² þaki, fúin borðaklæðning endurnýjuð og nýtt ólitað aluzink-bárujárn lagt með nýjum pappa. Settir voru nýir kvistgluggar með rafdrifinni opnun tengdri brunakerfi hússins, nýjar skotrennur, kjöljárn, vinklar, útloftunartúður, rennur og niðurföll. Rafdrifnir loftræstihattar voru teknir niður, slípaðir, málaðir og settir upp aftur.
Á Rjúpufelli 25–35 var skipt um um 1.470 m² af þakjárni ásamt kvistum. Þar var jafnframt skipt um gler í nokkrum kvistum, kvistgluggar málaðir, þaklúgur endurnýjaðar, ný renna sett upp og hitavír lagður í skotrennur. Á verkfundi í júní 2024 kom fram að eftirlitsmaður væri sáttur við vinnubrögð og að verkinu væri að ljúka.
Um verkið
- Staðsetning: Rjúpufell 42–48 og Rjúpufell 25–35, Reykjavík
- Verktími: vor og sumar 2024
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: ca. 975 m² (42–48) og ca. 1.470 m² (25–35)
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Rif og förgun á gömlu bárujárni og pappa
- Nýtt ólitað aluzink-bárujárn með þakpappa á báðum húsum
- Endurnýjun fúinnar borðaklæðningar þar sem þurfti
- Nýir kvistgluggar með rafdrifinni opnun tengdri brunakerfi (42–48)
- Frágangur á kvistum, glerskipti og málun kvistglugga (25–35)
- Nýjar rennur, niðurföll, kjöljárn, skotrennur, túður og þaklúgur
Efni
- Aluzink-bárujárn 0,6 mm
- Þakpappi
- Kvistgluggar með reyklosun
- Hitavír í rennur

