Selhóll 2 – Endurbætur og viðbygging sumarhúss – ljósmynd 1

Sumarhús í Grímsnesi tekið í gegn og stækkað – nýtt eldhús, baðherbergi og innréttingar ásamt viðbyggingu.

Selhóll 2 er sumarhús í Grímsnesi þar sem Bygging og Viðhald annaðist heildarendurbætur á eldra húsi og byggði við það. Verkið var unnið í áföngum frá 2023 til 2025.

Fyrst var húsið tekið í gegn að innan. Nýtt eldhús, baðherbergi og forstofuskápar voru hannaðir og smíðaðir eftir teikningum, gluggar málsettir og endurnýjaðir og gengið frá veggja- og loftaklæðningum. Árið 2024 var hafist handa við viðbyggingu eftir samþykktum teikningum, sem stækkaði húsið og bætti við rými og útsýnisgluggum.

Að verki loknu var húsið myndað í apríl 2025. Útkoman er bjart og vandað sumarhús með stórum pöllum, heitum potti og útsýni yfir Grímsnesið.

Um verkið

  • Staðsetning: Selhóll, Grímsnes- og Grafningshreppur
  • Verktími: 2023–2025
  • Verkkaupi: Einbýlishús / sumarhús
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Endurbætur á eldra sumarhúsi að innan
  • Nýtt eldhús, baðherbergi og forstofuskápar eftir teikningum
  • Málsetning og endurnýjun glugga
  • Viðbygging eftir samþykktum teikningum
  • Pallar og frágangur utanhúss

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →