Þakskipti á 11 hæða fjölbýlishúsi í Breiðholti – efsta þak og þök á 7. hæð, alls um 575 m².
Krummahólar 2 er 11 hæða fjölbýlishús í Breiðholti. Haustið 2023 endurnýjaði Bygging og Viðhald þök hússins: stóra þakið efst (um 374 m²) og minni þök að framan og aftan á 7. hæð (um 152 m²), alls um 575 m².
Vinna í þessari hæð krafðist góðs skipulags á lyftum, fallvörnum og efnisflutningum. Á efsta þakinu var borðaklæðning endurnýjuð áður en nýtt járn var lagt. Á minni þökunum kom í ljós að undir voru fjögur lög af gömlum pappa og hluti gamla járnsins var steyptur fastur, svo brjóta þurfti steypu til að ná því upp. Í kjölfarið var múrað í, gamlar flasningar fjarlægðar og nýjar settar upp með réttum frágangi að veggjum.
Alls voru settir um 271 m af flasningum, 118 m af rennum, 50 m af kili og 26 loftunartúður í ýmsum stærðum.
Um verkið
- Staðsetning: Krummahólar 2, Reykjavík
- Verktími: ágúst–október 2023
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: ca. 575 m² (efsta þak 374 m² og þök á 7. hæð 152 m²)
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Nýtt bárujárn á efsta þaki og minni þökum á 7. hæð
- Endurnýjun borðaklæðningar á efsta þaki
- Brotin steypa og fjarlægð fjögur lög af gömlum pappa á minni þökum
- Múrað í og nýjar flasningar settar upp
- Nýjar rennur, kjölur og 26 loftunartúður
Efni
- Bárujárn
- Þakpappi
- Flasningar

