Fannafold 153–153a – Þakskipti – Bygging og Viðhald – mynd 2

Þak á tveimur samliggjandi eignum í Grafarvogi, um 293 m², endurnýjað með hvítu aluzink-járni á loftaðri lektugrind.

Eigendur Fannafoldar 153 og 153a í Grafarvogi sameinuðust um að skipta um þak á húsinu. Tilboð Bygginga og Viðhalds miðaðist við um 293 m² þakflöt og var samþykkt í febrúar 2026.

Verkið hófst 2. mars. Eldra járn og pappi voru rifin af og fargað, öndunardúkur lagður og ný lektugrind sett upp svo þakið loftar vel. Eigendur ákváðu þegar verkið var hafið að velja innbrenndan hvítan lit á járnið í stað ólitaðs aluzinks, og var efnið pantað í samræmi við það. Kjölur, áfellur og skotrennur voru endurnýjuð, settar nýjar 100 mm álrennur með slefrennu og nýjar loftunartúður, og borðaklæðning endurnýjuð þar sem þörf reyndist.

Þakskiptunum lauk á um tíu dögum og hrósaði verkkaupi sérstaklega mönnunum sem unnu verkið fyrir vönduð vinnubrögð.

Um verkið

  • Staðsetning: Fannafold 153–153a, Reykjavík
  • Verktími: mars 2026
  • Umfang: ca. 293 m² þak
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Rif og förgun á eldra járni og pappa
  • Öndunardúkur og nýjar lektur (45×95 og 21×45) fyrir loftað þak
  • Nýtt skrúfað aluzink-þakjárn með innbrenndum hvítum lit
  • Kjölur, áfellur og skotrennur
  • Nýjar 100 mm álrennur og slefrenna
  • Nýjar loftunartúður og endurnýjun borðaklæðningar þar sem þurfti

Efni

  • Aluzink-bárujárn með innbrenndum lit (hvítt)
  • Öndunardúkur
  • Lektur 45×95 og 21×45
  • Álrennur 100 mm
  • Loftunartúður

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →