Valshólar 4 – Bygging og Viðhald, drónamynd 1

Þakskipti á þriggja hæða fjölbýlishúsi í Hólahverfi í Breiðholti með nýju aluzink bárujárni, áfellum, álrennum og loftun.

Húsfélagið að Valshólum 4 í Breiðholti fékk tilboð frá Byggingu og Viðhaldi í endurnýjun á öllu þakinu vorið 2026 og samþykkti það.

Eldra járn og pappi eru rifin af og fargað, lagður nýr þakdúkur og nýtt skrúfað bárujárn úr ólituðu aluzinki á um 279 m² þak. Kjölur, áfellur og skotrennur eru endurnýjaðar, settar nýjar þakrennur og niðurföll úr áli ásamt slefrennu, ný þaklúga og loftunartúður.

Framkvæmdir hófust 25. september 2026 og er unnið utan frá, án truflunar fyrir íbúa.

Um verkið

  • Staðsetning: Valshólar 4, Reykjavík (Breiðholt)
  • Verktími: haust 2026
  • Verkkaupi: Húsfélag
  • Umfang: ca. 279 m² þak
  • Staða: Í vinnslu

Verkþættir

  • Rif og förgun á eldra þakjárni og pappa
  • Nýr þakdúkur og nýtt skrúfað bárujárn
  • Nýr kjölur, áfellur og skotrennur
  • Nýjar álrennur og niðurföll ásamt slefrennu
  • Ný þaklúga og loftunartúður

Efni

  • Ólitað aluzink bárujárn
  • Þakdúkur
  • Álrennur 100 mm og niðurföll 70 mm
  • Loftunartúður

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →

Myndband