Gluggaskipti og viðhaldsframkvæmdir í fjögurra hæða fjölbýlishúsi í Seláshverfi: nýir gluggar, nýjar álfellur og vatnsbretti og vinna við þak.
Húsfélagið að Víkurási 2–4 í Árbæ réðst í viðhaldsframkvæmdir á húsinu og samdi við Byggingu og Viðhald um verkið. Unnið er eftir magnskrá og undir eftirliti ráðgjafa á vegum húsfélagsins, með reglulegum verkfundum og framvindu sem mæld er jafnóðum.
Haustið 2025 var unnið við þakið, m.a. ný einangrun og tenging niðurfalla. Gluggarnir voru mældir upp og framleiddir hjá Gluggatækni, komu til landsins í desember 2025 og hófst ísetning í janúar 2026. Skipt er um glugga íbúð fyrir íbúð í samráði við íbúa, unnið úr vinnulyftu að utan.
Samhliða eru settar nýjar álfellur og vatnsbretti á gluggana – hvítar á neðri hæðum og grænar á efstu hæð í lit hússins. Hallandi gluggar á efstu hæð kölluðu á sérlausn með hallandi falsi og drenkerfi.
Um verkið
- Staðsetning: Víkurás 2–4, Reykjavík (Árbær)
- Verktími: haust 2025 – 2026
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: Gluggaskipti í öllu húsinu, álfellur og vatnsbretti, þakvinna
- Staða: Í vinnslu
Verkþættir
- Uppmæling og pöntun nýrra glugga
- Útskipting glugga íbúð fyrir íbúð
- Nýjar álfellur og vatnsbretti á glugga
- Sérlausn fyrir hallandi glugga á efstu hæð
- Þakvinna og einangrun
- Kjallaragluggar og hurðir
Efni
- Gluggar frá Gluggatækni
- Álfellur og vatnsbretti (RAL 9010 og grænar á efstu hæð)
- Álgluggar með drenkerfi fyrir hallandi glugga

