Flatt þak einbýlishúss í Breiðholti endurbyggt frá sperrum með nýrri einangrun, tveggja laga pappa og stórbættri loftun.
Á Skriðustekk 8 í Breiðholti var flatt þak einbýlishússins án fullnægjandi loftunar. Bygging og Viðhald tók að sér að fjarlægja þakuppbygginguna niður að sperrum og endurbyggja þakið með bættri loftun.
Sperrur voru hækkaðar úr 195 mm í 220 mm, settir loftunarlistar og fleygar svo loft leiki milli sperrubila, lögð ný borðaklæðning, 200 mm þakull og rakavarnardúkur. Ofan á komu tvö lög af þakpappa brædd upp á nýjar áfellur sem ná lengra út fyrir þakkantinn, skordýranet var sett milli áfellu og útveggjar og tólf lofttúður settar á þakið.
Verkið hófst í maí 2026 og var að mestu lokið í byrjun júní, en lokafrágangur fór fram nokkrum vikum síðar.
Um verkið
- Staðsetning: Skriðustekkur 8, Reykjavík
- Verktími: maí–júní 2026
- Verkkaupi: Einkaaðili
- Umfang: ca. 200 m² flatt þak
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Niðurrif eldri þakuppbyggingar niður að sperrum og förgun
- Sperrur hækkaðar úr 195 mm í 220 mm
- 25 mm loftunarlistar, fleygar milli sperrubila og ný borðaklæðning
- 200 mm þakull og rakavarnardúkur
- Tvö lög af þakpappa brædd upp á nýjar áfellur
- 12 nýjar lofttúður og skordýranet
Efni
- Tveggja laga þakpappi
- Þakull 200 mm
- Rakavarnardúkur
- Lofttúður
- Skordýranet

