Hamraberg 12–14 – nýtt þak á parhúsi – Bygging og Viðhald

Þakskipti á parhúsi í Breiðholti – nýtt járn og dúkur, áfellur, álrennur, loftunartúður og ný þaklúga.

Á Hamrabergi 12–14 í Breiðholti var komið að endurnýjun þaksins á parhúsinu. Bygging og Viðhald skoðaði þakið í byrjun febrúar 2026 og gerði tilboð í heildarþakskipti sem eigendur samþykktu.

Eldra járn og pappi voru rifin af og fargað, lagður nýr þakdúkur og nýtt þakjárn skrúfað á um 146 m² þak. Kjölur, áfellur og skotrennur voru endurnýjaðar, settar nýjar þakrennur og niðurföll úr áli ásamt slefrennu, nýjar loftunartúður til að bæta loftun og þaklúga endurnýjuð.

Framkvæmdir hófust í maí 2026 og lauk verkinu í júní sama ár.

Um verkið

  • Staðsetning: Hamraberg 12–14, Reykjavík
  • Verktími: maí–júní 2026
  • Verkkaupi: Einkaaðili
  • Umfang: ca. 146 m² þak
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Rif og förgun á eldra þakjárni og pappa
  • Nýr þakdúkur og nýtt skrúfað þakjárn
  • Nýr kjölur, áfellur og skotrennur
  • Nýjar álrennur og niðurföll ásamt slefrennu
  • Nýjar loftunartúður og endurnýjun þaklúgu

Efni

  • Aluzink bárujárn
  • Þakdúkur
  • Álrennur og niðurföll
  • Loftunartúður

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →

Myndband