Þakreiknivélin

Settu inn gróf mál af húsinu, veldu þakefni og lit – og fáðu frítt tilboð í nýtt þak.

Reikna tilboð í þak →

Þakskipti í Hafnarfirði – nýtt þak og þakviðgerðir

Í Hafnarfirði höfum við endurnýjað þök á skólum fyrir Hafnarfjarðarbæ, fjölbýlishúsum, raðhúsum og atvinnuhúsnæði. Hér fyrir neðan eru 5 þakverk sem við höfum lokið í Hafnarfirði, samtals um 4.430 m² þar sem stærð er skráð. Verkkaupar eru meðal annars Hafnarfjarðarbær, auk húsfélaga og fyrirtækja.

Þakverk í Hafnarfirði

  • Setbergsskóli – 2.085 m²: Ný uppbygging þaks, bárujárn og rakavarnarlag innanhúss.
  • Hvaleyrarskóli – 1.280 m²: Þak skólans endurnýjað sumarið 2025 ásamt rakavarnarlagi innanhúss.
  • Breiðvangur 24–28 – 1.065 m²: Aluzink-bára, nýr pappi, rennur, túður og þaklúgur á fjölbýlishúsi.
  • Lækjarhvammur – sex hús: Byrjaði með einu tilboði og endaði í nýjum þökum á sex húsum í sömu götu.
  • Kaplahraun 14: Nýtt þak og bárujárnsklæðning á atvinnuhúsnæði á tæpum tveimur vikum.

Hvað er innifalið í þakskiptum?

Rif og förgun á gömlu járni og pappa, yfirferð á borðaklæðningu og sperrum, nýr pappi eða öndunardúkur, oft tvöföld lektun, nýtt aluzink- eða litað bárujárn eða læst klæðning, og allur frágangur – kjöljárn, skotrennur, áfellur, rennur, niðurföll og þakgluggar eftir þörfum. Á þakskiptum veitum við 10 ára ábyrgð. Nánar um þakskipti og þakviðgerðir og hvað kostar að skipta um þak.

Þakreiknivélin

Heimilisfangið dugar – fáðu frítt tilboð í nýtt þak.

Opna Þakreiknivélina →

Er þakið að leka? Sjá þakviðgerðir og lekaviðgerðir. Önnur sveitarfélög: Reykjavík · Kópavogur.

Algengar spurningar

Vinnið þið í öllum hverfum Hafnarfjarðar?

Já. Við vinnum um allt höfuðborgarsvæðið og tökum að okkur þakverk af öllum stærðum – frá einbýlishúsum upp í skóla og stór fjölbýlishús.

Hvað tekur langan tíma að skipta um þak?

Algengt einbýlishúsaþak tekur yfirleitt eina til tvær vikur ef veður leyfir. Stór þök á fjölbýli, skólum eða atvinnuhúsnæði taka lengri tíma – til dæmis var um 1.940 m² þak Íþróttahússins Digranesi endurnýjað á þremur mánuðum.

Hvernig fæ ég tilboð?

Einfaldast er að nota Þakreiknivélina: sláðu inn heimilisfangið og við svörum með frítt tilboð. Við skoðum og mælum þakið á staðnum áður en tilboð er endanlegt.