
Verð á gluggaskiptum er mjög misjafnt eftir verkum – einn lítill gluggi og allir gluggar í fjölbýlishúsi eru gjörólík verk. Hér förum við yfir hvað ræður mestu um verðið og hvernig þú færð raunhæft tilboð á fljótlegan hátt.
Það sem ræður verðinu
- Stærð og fjöldi glugga – verð á glugga fer að miklu leyti eftir fermetrum og fjölda eininga.
- Efni – timburgluggar eða álklæddir timburgluggar. Álklæddir gluggar kosta meira en þurfa minna viðhald.
- Gler – tvöfalt eða þrefalt einangrunargler, hljóðeinangrandi gler eða öryggisgler.
- Opnanleg fög – fleiri opnanleg fög og sérlausnir auka kostnað.
- Hurðir – svalahurðir og útihurðir í sama verki.
- Aðgengi – hæð glugga, hvort þurfi lyftu eða vinnupalla.
- Ástand veggja og frágangur – fúi, múrviðgerðir og frágangur að innan og utan.
Ísetning skiptir jafn miklu og glugginn
Góður gluggi sem er illa settur í lekur og einangrar illa. Þegar þú berð saman tilboð er mikilvægt að vita hvort ísetning, förgun og frágangur séu innifalin. Hjá okkur færðu tilboð í allan pakkann – gluggar, hurðir og ísetning, allt á einum stað.
Glerskipti geta verið ódýrari leið
Ef karmurinn er heill og aðeins glerið er ónýtt, t.d. móða milli glerja, getur dugað að skipta um glerið. Lestu meira um glerskipti.
Skráðu gluggana á nokkrum mínútum – við sendum tilboð
Í Gluggareiknivélinni skráir þú gluggana og hurðirnar, setur inn gróf mál og mynd af hverri einingu og færð frítt tilboð frá okkur. Málin þurfa ekki að vera nákvæm – við mælum sjálf áður en pantað er.
Gluggareiknivélin: Skráðu gluggana og hurðirnar, settu inn gróf mál og mynd og fáðu frítt tilboð í allan pakkann – gluggar, hurðir og ísetning, allt á einum stað. Opna Gluggareiknivélina →
Sjá einnig gluggaskipti og gluggaviðgerðir og dæmi um gluggaskipti sem við höfum unnið.

