Skipt um 55 glugga, 8 svalahurðir og 3 útidyrahurðir í fjölbýlishúsi í Breiðholti – tvílitir ál-tré gluggar frá Gluggatækni.
Fyrir húsfélagið að Ugluhólum 10 í Breiðholti skipti Bygging og Viðhald um alla glugga og hurðir hússins: 55 glugga, 8 svalahurðir og 3 útidyrahurðir. Valdir voru tvílitir ál-tré gluggar frá Gluggatækni, sem sameina viðhaldslétta álklæðningu að utan og timbur að innan.
Allt var mælt utan frá svo ekki þurfti að trufla íbúa að óþörfu. Gluggarnir komu til landsins sumarið 2023 og ísetning fór fram í kjölfarið. Í lokin voru settar nýjar álplötur og áfellur í kringum glugga og vatnsbretti aðlöguð svo útlitið héldist í samræmi við upprunalegt útlit hússins. Aðalverkinu lauk með lokareikningi í mars 2024.
Ein hurð reyndist gölluð frá framleiðanda og fylgdi B&V málinu eftir þar til ný hurð var komin á sinn stað sumarið 2024.
Um verkið
- Staðsetning: Ugluhólar 10, Reykjavík
- Verktími: júní 2023 – mars 2024
- Verkkaupi: Húsfélag
- Umfang: 55 gluggar, 8 svalahurðir og 3 útidyrahurðir
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Málsetning allra glugga og hurða utan frá
- Pöntun á tvílitum ál-tré gluggum og hurðum frá Gluggatækni
- Fjarlæging eldri glugga og hurða og förgun
- Ísetning 55 glugga, 8 svalahurða og 3 útidyrahurða
- Nýjar álplötur og áfellur í kringum glugga og vatnsbretti aðlöguð að upprunalegu útliti
- Eftirfylgni og útskipting á gallaðri hurð frá framleiðanda
Efni
- Ál-tré gluggar og hurðir, tvílitir (Gluggatækni)
- 2 mm álplötur í RAL 7037

