Álfabakki 2 – Innanhússfrágangur í nýbyggingu fyrir Haga – ljósmynd 1

Trésmíði og innanhússfrágangur fyrir matvælavinnslu og skrifstofur í nýbyggingu Haga við Álfabakka 2: innveggir, burðarloft og kerfisloft.

Álfabakki 2 er ný iðnaðar- og skrifstofubygging í Mjódd þar sem Hagar eru leigutaki og innrétta húsið fyrir matvælaframleiðslu, pökkun og lager á jarðhæð og skrifstofur á annarri hæð. Verkkaupi leitaði verða í trésmíði innanhúss og Bygging og Viðhald tók að sér þann verkþátt.

Verkið nær til rýma Ferskra kjötvara og Eldum rétt á 1. og 2. hæð ásamt sameignarrýmum við lyftukjarna og flóttastigahús. Bygging og Viðhald reisir létta innveggi úr blikkstoðum með steinull, krossvið og gifsi, þar á meðal brunaveggi og veggi í votrýmum, setur upp timburbita og gólfplötur í burðarloftum, einangrar sperruloft og setur upp raka- og mygluþolin gifsloft og hreinlætiskerfisloft. Einnig eru stálsúlur í frystum einangraðar og klæddar áli.

Framkvæmdir hófust í janúar 2026 og hafa staðið samfellt síðan, með mánaðarlegum framvinduuppgjörum við eftirlit verkkaupa. Á lokametrunum hefur verið unnið um helgar til að halda verkáætlun.

Um verkið

  • Staðsetning: Álfabakki 2, Reykjavík
  • Verktími: janúar–september 2026
  • Verkkaupi: Hagar
  • Staða: Í vinnslu

Verkþættir

  • Léttir innveggir úr blikkstoðum með steinull, krossvið/OSB og gifsi, m.a. brunaveggir (EI60) og veggir í votrýmum
  • Timburbitar og reimar í burðarloftum samkvæmt burðarþolsteikningum
  • Gólfspónaplötur og hljóðeinangrun í sperruloftum
  • Raka- og mygluþolin gifsloft
  • Hygiene-kerfisloft (Ecophon) í matvælavinnslurýmum og kjallara
  • Einangrun og álklæðning stálsúlna í frystum
  • Aukaverk og breytingar í samráði við eftirlit verkkaupa

Efni

  • Blikkstoðir og gifsplötur
  • Steinull
  • Krossviður/OSB
  • Ecophon Hygiene og Focus Ds kerfisloft

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →