Skúlagata 40 – suðurgafl, gluggar merktir fyrir glerskipti og ný opnanleg fög

Glerskipti og ný opnanleg fög á efri hæðum fjölbýlishúss við Skúlagötu, unnin úr körfulyftu.

Húsfélagið við Skúlagötu 40–40b leitaði til Bygging og Viðhalds vegna glers og opnanlegra faga sem voru komin á tíma. Út frá málum húsfélagsins var gert tilboð í um 31 m² af glerskiptum auk nýrra opnanlegra faga, og fögin voru smíðuð hjá Gluggatækni með SKN176 gleri.

Verkið var að mestu unnið í nóvember og desember 2025. Þar sem gluggarnir eru á efri hæðum hússins var unnið úr körfulyftu. Skipt var um gler, nýju fögin sett í og glerfölsin máluð með sérstakri málningu sem þurrkuð var með hitablásara svo hægt væri að vinna verkið þrátt fyrir haustveður.

Nokkur viðbótarfög í stafngluggunum voru pöntuð í kjölfarið og sett í sumarið 2026.

Um verkið

  • Staðsetning: Skúlagata 40–40b, Reykjavík
  • Verktími: nóvember 2025 – júní 2026
  • Verkkaupi: Húsfélag
  • Umfang: ca. 31 m² gler og um 20 ný opnanleg fög
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Mæling og pöntun á nýju gleri fyrir íbúðir á efri hæðum
  • Glerskipti unnin úr körfulyftu á háhýsi
  • Ný opnanleg fög með SKN176 gleri smíðuð hjá Gluggatækni og sett í
  • Málun glerfalsa með sérstakri málningu og hitablásara til þurrkunar
  • Viðbótarfög í stafngluggum sett í sumarið 2026

Efni

  • SKN176 gler
  • Opnanleg timburfög frá Gluggatækni
  • Gler frá Íspan

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →

Ljósmyndir

Þjónusta sem tengist þessu verkiGluggaskipti og hurðir →  ·  Reikna tilboð í glugga →

Unnum við fyrir þig? Gefðu okkur umsögn á Google →