Skipt um glugga í fjölbýlishúsi í Fossvogi, með þéttingu og frágangi samkvæmt byggingarreglugerð.
Húsfélagið að Marklandi 6–10 í Fossvogi samdi við Byggingu og Viðhald haustið 2025 um gluggaskipti í húsinu. Allir gluggar voru málsettir nákvæmlega og framleiddir hjá Gluggatækni eftir samþykktum teikningum, þar sem m.a. var ákveðið að breikka ákveðin fög og hafa í þeim gler.
Ísetning hófst í lok apríl 2026. Unnið var skipulega íbúð fyrir íbúð í samráði við fulltrúa húsfélagsins, gömlu gluggarnir fjarlægðir og þeim fargað og nýir gluggar felldir í. Gengið var frá þéttingu samkvæmt byggingarreglugerð, með kítti, pulsu og einangrun og múr að utan, og einangrað og kíttað að innan.
Gluggaskiptunum lauk í júní 2026 og minni lagfæringar voru kláraðar í framhaldinu.
Um verkið
- Staðsetning: Markland 6–10, Reykjavík
- Verktími: apríl–júní 2026
- Verkkaupi: Húsfélag
- Staða: Lokið
Verkþættir
- Nákvæm málsetning allra glugga og framleiðsluteikningar samræmdar við framleiðanda
- Rif og förgun eldri glugga
- Ísetning nýrra glugga frá Gluggatækni, íbúð fyrir íbúð
- Þétting samkvæmt byggingarreglugerð: kítti, pulsa, ull/frauð og múr að utan
- Frágangur að innan með einangrun og kítti
- Lyfta, pallar, flutningur og förgun
Efni
- Timburgluggar (Gluggatækni)

