Lækjarhvammur – Þakskipti á sex húsum – ljósmynd 1

Verkefni sem hófst með einu tilboði endaði í nýjum þökum á sex húsum í sömu götu í Hafnarfirði.

Upphafið var tilboð í þakskipti á einu húsi við Lækjarhvamm í Hafnarfirði sumarið 2025. Þegar íbúar í götunni sáu til verksins bættust fleiri hús við og á endanum skipti Bygging og Viðhald um þök á sex húsum: númerum 3, 5, 7, 9, 12 og 16.

Á hverju húsi var eldra járn og pappi rifið af og fargað, lagður þakdúkur og nýtt skrúfað aluzink-járn, auk kjalar, áfella og skotrenna. Rennur og niðurföll voru endurnýjuð úr áli, settar slefrennur og lofttúður og hattar á strompa þar sem við átti. Á Lækjarhvammi 16 þurfti að taka niður klæðningu á þakkanti til að lagfæra timburverk undir og ganga frá að nýju. Þakfletir voru á bilinu um 164 til 210 m² á hús.

Vinnupallar voru settir upp í apríl 2026 og húsin tekin hvert af öðru fram í byrjun júní. Það er alltaf góð tilfinning þegar traust byggist upp á meðan á verki stendur og fleiri nágrannar ákveða að fara sömu leið.

Um verkið

  • Staðsetning: Lækjarhvammur 3, 5, 7, 9, 12 og 16, Hafnarfjörður
  • Verktími: apríl–júní 2026
  • Umfang: 6 hús, ca. 164–210 m² þak á hvert hús
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Rif og förgun á eldra járni og pappa
  • Nýr þakdúkur og skrúfað ólitað aluzink-þakjárn
  • Kjölur, áfellur og skotrennur
  • Nýjar 100 mm álrennur, 70 mm niðurföll og slefrennur
  • Nýjar lofttúður og hattar á strompa
  • Lagfæring timburverks í þakkanti og endurnýjun borðaklæðningar þar sem fúi fannst

Efni

  • Aluzink-bárujárn (ólitað)
  • Þakdúkur
  • Álrennur 100 mm og niðurföll 70 mm
  • Lofttúður

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →