Leikskólinn Furugrund – Endurnýjun á þaki – ljósmynd 1

Endurnýjun á um 630 m² þaki leikskólans Furugrundar fyrir Kópavogsbæ – nýtt járn, dúkur, kantar, rennur og gaflklæðning.

Kópavogsbær bauð út endurnýjun á þaki leikskólans við Furugrund 1 vorið 2026 og var Bygging og Viðhald falið verkið. Þakið er uppstólað, kalt þak og var endurnýjað í heild, að undanskildum miðjuhluta byggingarinnar. Samkvæmt lokamælingu var um 630 m² þakflötur rifinn og endurnýjaður.

Eldra járn, pappi, áfellur, rennur og kantklæðning voru fjarlægð og efni flokkað til förgunar. Skipt var um fúin borð í klæðningu, lagður nýr þakdúkur og nýtt ólitað aluzink-bárujárn ásamt kjöljárni, skotrennum og áfellum. Undirkerfi og klæðning þakkants voru endurnýjuð, klætt undir þakkant og skyggni og ný viðarklæðning sett á gafla. Settar voru nýjar álrennur með áfellum, niðurföllum og snjógildrum, þaktúður og útsogsblásari endurnýjuð og nýtt timburvirki grunnað og málað.

Verkið var unnið að sumri á meðan engin starfsemi var í húsinu, með ríka áherslu á snyrtilega umgengni á leikskólalóð. Lokauppgjör var samþykkt af verkkaupa í byrjun september 2026.

Um verkið

  • Staðsetning: Furugrund 1, Kópavogur
  • Verktími: júlí–ágúst 2026
  • Verkkaupi: Kópavogsbær
  • Umfang: ca. 630 m² þak
  • Staða: Lokið

Verkþættir

  • Rif og förgun á eldra þakjárni, pappa, áfellum, rennum og kantklæðningu
  • Endurnýjun fúinnar borðaklæðningar og nýr þakdúkur
  • Nýtt ólitað aluzink-bárujárn, kjöljárn, skotrennur og kverkáfellur
  • Nýtt undirkerfi og klæðning á þakkanti, undir þakkanti og á göflum
  • Nýjar 110 mm álrennur með áfellum, niðurföllum og snjógildrum
  • Endurnýjun þaktúða og útsogsblásara og málun á nýju timburvirki

Efni

  • Aluzink bárujárn 0,6 mm
  • Þakdúkur
  • Álrennur 110 mm
  • Timburklæðning og viðarpanill
  • Snjógildrur

Ertu með svipað verk? Fáðu tilboð – án skuldbindingar →